Freyr - 01.10.1978, Page 11
ÓTTAR GEiRSSON:
Framkvæmdir bænda 1977
Grænfófiurrækt eykst stöfiugt
í eftirfarandi yfirliti er drepiS á nokkur atriði varðandi framkvæmdir bænda
árið 1977. Eingöngu er fjallað um þær framkvæmdir, sem njóta framlags úr
ríkissjóði samkvæmt jarðræktarlögum og skýrslur berast um til Búnaðar-
félags íslands.
Á árinu 1977 var óvenjulítið um ræktunar-
framkvæmdir meðal bænda, aðrar en rækt-
un grænfóðurs. Nýræktir voru 2807 ha og
hafa ekki verið minni á einu ári síðan 1955.
Árið 1976 mældust nýræktir 3193 ha. Það
hefur því orðið 12% samdráttur í nýræktun
frá fyrra ári.
Framræsla var með minnsta móti. Grafnir
voru innan við 3.9 milljónir m3 af skurðum,
og er það minna en grafið hefur verið á
einu ári síðan 1963 og 14% minna en árið
áður. Plógræsi voru 2.6 milljónir m, en voru
6.8 milljónir m á einu ári, þegar mest var,
árið 1968.
Grænfóður var ræktað í 4768 ha árið
1977, og hefur aldrei verið ræktað eins
mikið grænfóður á íslandi fyrr. Það er 20%
aukning frá árinu áður, sem þó var metár.
Grænfóðurrækt hefur sífellt aukist hin síðari
ár. Mikill kippur kom í grænfóðurræktina á
kalárunum, en þá lærðu margir bændur
tökin á þessari ræktun og komust að því
hve grænfóðrið er hentugt til að lengja hið
stutta sumar hér á landi. Haustfóðrun kúnna
byggist hjá kúabændum á grænfóðri og
margir fjárbændur nota grænfóður til að
lengja beitartíma dilka, áður en þeim er
slátrað. Grænfóðurrækt tvöfaldaðist á árun-
F R E Y R
695