Freyr - 01.10.1978, Side 12
um 1968 ti! 1970 og síðan hefur hún aukist
um 40%.
Árið 1977 var mikið byggingaár. Þá voru
byggðar votheyshlöður, sem voru samtals
71 þus. m3. Það er 2.5 sinnum meira rými
en mælst hefur á einu ári áður. Áburðar-
kjallarar, sem lokið var við árið 1977, voru
100 þús. m3. Árið 1974 var veitt framlag á
113 þús. m3 í áburðargeymslum, og það er
eina árið, sem byggt hefur verið meira af
slíkum húsum en árið 1977. Aukning milli
áranna 1976 og 1977 reyndist vera 30%.
Árið 1977 voru reistar þurrheyshlöður,
sem rúma 136 þús. m3. Það er með meira
móti og 17% meira en árið áður. Súgþurrk-
unarkerfi mældust tæpir 20 þús. m2 og það
er einnig 17% meira en 1976.
Af öðrum framkvæmdum, sem veitt er
framlag á samkvæmt jarðræktarlögum, er
ástæða til að nefna vatnsveitur. Til þeirra
var veitt 82.5 milljónum króna árið 1977 en
78 milljónum árið áður. Það er því greini-
lega um samdrátt að ræða á þessu sviði, ef
tekið er mið af verðbólgu milli þessara ára.
Alls voru framlög ríkisins samkvæmt
jarðræktarlögum á framkvæmdir ársins
1977 rösklega 1062 milljónir króna en voru
árið áður um 773 milljónir. Aukningin er
nokkru meiri en verðbólguaukning, og á
rætur sínar að rekja til aukningar í bygg-
ingaframkvæmdum, sem var nokkru meiri
en samdráttur í ræktun.
Nýræktun hefur dregist verulega
saman á undanförnum árum.
696
F R E Y R