Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Síða 17

Freyr - 01.10.1978, Síða 17
áburðarnotkunar þar mest. Þegar land er tekið til ræktunar, er þó á ýmsan hátt gagn- legt að þekkja jarðveg í meiri dýpt, t.d. vegna framræslu, skurðruðninga og dýptar jarðvinnslu. Votlendisjarðvegur. Skipting votlendis í flóa og hallamýri fer einkum eftir aðstæðum í landslagi. Flói er þá votlendi með halla- litlu yfirborði og kyrrstæðu grunnvatni ná- lægt yfirborði jarðvegs. Votlendi er síðan flokkað frekar eftir rakaástandi (framræslu). Ekki voru tekin snið af flæðimýri. Sýrustig mælist lægst í flóanum, en lítið eitt hærra í hallamýri. (Þegar sýrustigstalan lækkar, eykst súrinn). í hallandi mýrum er munurinn meiri og sýrustig breytist oft ó- reglulega með dýpt. í flóanum fer það nær ávallt lítið eitt hækkandi með dýpt. Við mat á magni steinefna (kalsíum, magníum, kalíum) verður að hafa í huga, hve rúmþyngd jarðvegs er mismunandi. Efnamagn í mýrlendi með lága rúmþyngd verður því mun minna en í sama rúmtaki af steinefnajarðvegi. Kalsíummagnið í flóum og hallamýrum á svæðinu er því að meðal- tali mjög lítið. Ennfremur fylgist að lágt sýrustig og lítið kalsíummagn, þó þannig, að aukið magn lífrænna efna veldur einnig lækkun sýrustigs. Mýrlendi í Borgarfirði og á Mýrum virðist oft kalsíumsnautt og súrt. Ráðlegt er að kalka þetta land við ræktun eða nota kalsíumáburð. Eins og áður getur er munurinn þó meiri innan hallamýranna, þannig að þar finnast steinefnaauðugari mýrar. Votlendi um Mýrar virðist jafnlakast, en sýrustig og efnamagn í flóum um ofan- verðan Borgarfjörð er oft áþekkt. Magnið af magníum er tiltölulega mikið, en forðinn af auðleystu kalíum er lítill vegna lágrar rúmþyngdar og þess, hve talan lækk- ar mikið með dýpt. Notkun kalíumáburðar verður því að miðast við þörf gróðursins, sem fer mest eftir sprettu. Við venjulegar aðstæður (45—60 hestþurði af heyi á hekt- ara) ætti að þurfa 60—80 kg/ha af hreinu K á mýrartún, þ.e. 120—160 kg/ha af venju- legu túnkalíi. Fosfór í óræktuðu landi er næstum ávallt torleystur. í fyrstu þarf því að bera á veru- lega umfram þarfir gróðurins, en með tím- anum batnar nýtingin og áburðarþörfin minnkar. Þurrlendisjarðvegur. Móajarðvegur er flokkaður eftir mati á kornastærð. Fínkorna jarðvegur einkennist yfirleitt af meira mélu- magni, hann er einnig oft dýpri en hinn sendni. Til áreyrajarðvegs er talinn jarðveg- ur myndaður við árframburð fremur en af áfoki, þ.e. sendinn eða malarborinn jarð- vegur. Sýrustig og steinefnamagn er mun hag- stæðara í vel ræsta jarðveginum. í móanum er sýrustig lægst í yfirborði en hækkar með dýpt en í áreyrajarðvegi eru breytingar á sýrustigi og steinefnamagni litlar með dýpt. Svipaður mismunur kemur fram í glæðitapi. Hærra glæðitap og meira magn lífrænna efna í fínkorna móanum stafar einkum af dýpri og kröftugri rótarvexti. Sendni móinn er því væntanlega ófrjórra ræktunarland. Kalsíumástand þurrlendisjarðvegs eryfir- leitt í góðu lagi og tæplega að vænta svör- unar við kalki. Einnig má að líkindum minnka kalíumskammtinn vegna meiri forða í jarð- veginum og meiri losunar kalíums úr jarð- veginum. í mýrlendi er árleg losun um 10— 20 kg K/ha, en erfiðara er að meta hana í steinefnajarðvegi, þar sem losunin er meiri og kannski nokkuð mismunandi. Um fosfór- inn gildir sama og um votlendisjarðveginn. Jarðvegur getur bundið fosfór misfast og í mismiklu magni, en bein vitneskja um hegðun jarðvegsgerða er ennþá ekki fyrir hendi. Greinin hefur áður birst í „Bréfi til bænda á Vestur- landi“. F R E Y R 701

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.