Freyr - 01.10.1978, Page 22
fyrir, aS fullþroska ær séu að beiða fram í
maí. Þess er getið, að sjaldgæft sé, að ær
gangi fyrri hluta sumars, þegar bjartast er,
og styðji þessar niðurstöður þá kenningu,
,,að árstíðabundinn fengitími sauðfjár í
þessum hluta heims stjórnist verulega af
Ijósi, þ.e.a.s. að mest kynstarfsemi sé í
skammdeginu, en úr henni dragi, þegar
daginn tekur að lengja.“
Fjölrit nr. 10.
Samstilling gangmála áa,
eftir dr. Ólaf R. Dýrmundsson.
Ritið fjallar um „helstu niðurstöður þriggja
ára rannsókna á samstillingu gangmála áa
með sérstöku tilliti til sauðfjársæðinga".
Notaðir voru „Veramix" svampar til þess að
samstilla gangmál ánna og segir í ályktun-
arorðum, að niðurstöður tilraunanna bendi
til þess, að þessir svampar henti vel ís-
lenskum ám til þessa.
Fjölrit nr. 11.
Tilraunaskýrsla 1975.
í ritinu er skýrt frá niðurstöðum jarðræktar-,
fóðurverkunar- og búfjárræktarrannsókna
á Hvanneyri árið 1975. Rætt er um veður-
far og gróður á árinu, störf á efnarann-
sóknastofu og vélaskýrslur nautgriparækt-
arfélaganna. Að lokum eru skrár um rit-
gerðir eftir vísindamenn, kennara og kandi-
data á Hvanneyri 1975.
Fjölrit nr. 12.
Vísindi og landbúnaður
(Science and Agriculture) eftir K. L. Blaxter.
Efni ritsins er erindi, sem dr. K. L. Blaxter,
forstöðumaður Rowettrannsóknarstöðvar-
innar í Bucksburn í Aberdeenborg í Skot-
landi flutti á háskóladegi Landbúnaðarhá-
skólans í Ási í Noregi 1975. Dr. Ólafur R.
Dýrmundsson þýddi. í þessu erindi fjallar
dr. Blaxter um þróun landbúnaðarrann-
sókna í heiminum. Hann ræðir um ýmsar
framfarir með tilliti til uppgötvana og rann-
sókna og víkur að tengslum milli vísinda-
manna og bænda. í því sambandi vitnar
hann í heimsókn til kínverska alþýðulýð-
veldisins og greinir frá skipulagi á breskum
landbúnaðarrannsóknum.
Fjölrit nr. 13.
Hegðun regnsins í Borgarfirði 1974,
eftir Bjarna Guðmundsson.
„í fjölriti þessu er sagt frá dálítilli athugun
á úrkomu í Borgarfjarðarhéraði árið 1974.
Sýnd er skipting úrkomunnar eftir sveitum
á ýmsum tímabilum ársins og greint frá
einfaldri athugun á úrkomudreifingu í Anda-
kíl, er gerð var í kringum sólstöður þjóð-
hátíðarársins".
Fjölrit nr. 14.
Hiti í heyjum, áhrif hans á hollustu,
fóðurgildi og lostætni heysins.
„í fjölriti þessu er greint frá athugun á
heyhita og áhrifum hans á myglumyndun
og fóðurgildi heysins. Meðal annars kemur
það fram, að svonefnt fóðrunargildi heys-
ins lækkaði mjög mikið, jafnvel þótt hita-
myndun í því væri takmörkuð. Mygla í hey-
inu hafði veruleg áhrif á lostætni þess.
Athugun þessi var gerð í samvinnu við bú-
tæknideild Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins á Hvanneyri".
Fjölrit nr. 15.
Tilraun með ræktun kartaflna á mýrarjörð,
eftir Magnús Óskarsson.
„Fjallað er um tilraunir, sem gerðar voru
með kartöflurækt á Hvanneyri 1975—1976.
Kartöflurnar voru í jörðu í 99—110 daga.
Uppskera var 9,7—26,1 tonn á ha, þegar
ræktunin fór fram á „venjulegan" hátt.
Gerðar voru tilraunir með mismunandi af-
brigði, ræktun undir plasti, magníum og
bóráburð, eyðingu illgresis og efni til að
auka geymsluhæfni kartaflanna.
Fjölrit nr. 16.
Tilraunaskýrsla 1976.
Þar segir frá niðurstöðum rannsókna í jarð-
rækt, búfjárrækt og fóðurverkun árið 1976.
Greint er stuttlega frá veðurfari og gróðri á
706
F R E Y R