Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1978, Page 23

Freyr - 01.10.1978, Page 23
árinu og störfum á efnarannsóknastofu. Loks er ritgerðaskrá. Fjölrit nr. 17. Erfðir skrokkmála íslenskra hesta. eftir Þorvald Árnason. Þetta er kandidatsritgerð höfundar frá framhaldsdeild Bændaskólans á Hvann- eyri vorið 1975. Við könnun á erfðum skrokkmála íslenskra hrossa hefur höfund- ur unnið úr gögnum frá hrossaræktarráðu- naut Búnaðarfélags íslands og einnig eigin mælingum og athugunum. Fjölrit nr. 18. Áhrif veðurfars á upptöku köfnunarefnis. eftir Pétur Þór Jóhannsson. Ritgerðin er kandidatsverkefni höfundar frá framhaldsdeildinni 1977. Þar er greint frá þeim veðurfarsþáttum, sem tilraunir benda til, að hafi áhrif á köfnunarefnisnám gróð- urs. Bent er á, að fleira en veðurfar hafi áhrif á köfnunarefnisupptöku, t.d. hvernig slætti er hagað. Fjölrit nr. 19. Veðurfar í Skagafirði og áhrif þess á jarðargróður, eftir Rögnvald Ólafsson. Fjölritið er kandidatsritgerð höfundar. Seg- ir í yfirliti, að ritgerðin fjalli um vorhita í Skagafirði, hvenær sá megi grænfóðurfræi þar með hliðsjón af honum og hverjar teg- undir grænfóðurs sé vænlegast að rækta í héraðinu. Greinarhöfundur telur, „að vorgróður byrji um það leyti, sem meðalhitastig sólar- hrings, fundið út frá millijöfnun meðalhita mánaða, fer yfir 4,0°C.“ Færð eru að því rök, að til grænfóðurs megi sá þrem vikum eftir þyrjun gróanda og að rækta megi í Skagafirði allar algengustu grænfóðurteg- undir, nema e.t.v. mergkál. Fjölrit nr. 20. Meðgöngutími eins-, tveggja- og þriggja- vetra áa, eftir Karl Friðriksson. Kandidatsritgerð höfundar vorið 1977. „Helstu niðurstöður, sem fengust, voru, að meðalmeðgöngutími allra áa var 142,57 dagar með meðalfrávik upp á 2.09 daga. Meðalmeðgöngutími eins vetra var 142.08 dagar, tveggja vetra 142,32 dagar og þriggja vetra 143.04 dagar. Mismunur á meðgöngutíma áa eftir sýslum kom fram. Raunhæf áhrif burðar komu fram hjá tveggja og þriggja vetra ám. Einlembdar ær höfðu lengri meðgöngutíma en tvílembd- ar og tvílembdar ær höfðu lengri með- göngutíma en þrílembdar ær“. Fjölrit nr. 21. Stærðarrannsóknir á íslenskum kúm, eftir Guðmund Jónsson. í þessu fjölriti, sem er ritgerð höfundar til kandidatsprófs, segir, að stærð kúa sé gagnlegt að þekkja, t.d. til þess að vita um þyngd þeirra, fóðurþörf og hentuga bása- stærð. Guðmundur Jónsson mældi árið 1976 543 kýr í Borgarfirði, Eyjafirði og Ár- nessýslu. Hann fann, að eyfirsku kýrnar höfðu 181,87 cm meðaltals brjóstmál, kýrn- ar í Árnessýslu 180.06 cm og þær þorg- firsku 175,07 cm brjóstmál. Samanburður á brjóstmáli, boldýpt, hæð á herðakamb og lengd kúnna sýndi mun milli landshluta í flestum tilfellum. Burðartími hafði áhrif á brjóstmál, hæð í spena, breidd milli set- beina og holdafar. Meðallengd kúnna frá herðakambi og aftur fyrir var 141,15 cm, en sama mál á norskum kúm var 1973 159,3 cm. Fjölrit nr. 22. Næringarefni og orka í beitargróðri, eftir Róbert Hlöðversson. Kandidatsritgerð höfundar 1977, reist á niðurstöðum beitartilraunanna í Álftaveri, Hvanneyri, Kálfholti og Sölvholti sumarið 1975. Meðal þess, sem kom fram, var, að F R E Y R 707

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.