Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Síða 24

Freyr - 01.10.1978, Síða 24
meltanleiki gróðurs virtist byrja að dala mánuði fyrr á Hvanneyri en Kálfholti og Sölvholti. í Álftaveri virtist meltanleikinn lítið breytast yfir sumarið. Próteininnihald í gróðri á Hvanneyri og Sölvholti var hátt allt sumarið. Ærnar vantaði kalsíum á öllum tilraunastöðunum. Margt fleira athyglisvert er að finna í ritinu. Fjölrit nr. 23. Samanburður á Gallowayblendingum og íslenskum gripum, eftir Þorvald Helga Þórðarson. „í ritgerð þessari er gerður samanburður á vaxtarhraða, byggingarlagi og kjötprósentu Gallowayblendinga og íslenskra gripa, sem slátrað var frá Hvanneyrarbúinu á árunum 1975 og 1976. Einnig er athuguð fylgni milli einstakra mála. Helstu niðurstöður, sem fengust, voru, að 1/4 blendingar, uxar, voru greinilega vænni en íslensku uxarnir. Af fyrri rannsóknum og fengnum niðurstöðum má ætla, að yfirburð- ir 1/4 blendinga yfir íslenska uxa skili sér betur við tveggja ára aldur en við eins og hálfs árs aldur. Marktækur munur (0.001 <P<0,01)fannst á kiötprósentu milli uxahópanna og höfðu 1/2 blendingar hæstu kjötprósentu en ís- lenskir lægsta.“ Fjölrit nr. 24 er ókomið, kemur út síðar. Fjölrit nr. 25. Athugun á jarðvegi á Mýrum, eftir Sigfús A. Ólafsson. í þessu riti „greinir frá athugun á nokkrum eðlis- og efnaeiginleikum framræsts mýr- lendis í tveim hreppum á Mýrum. Jarðveg- ur þessi er allsúr og fremur snauður af auðleystum steinefnum. Auðleyst kalsíum er mjög lítið og kölkun virðist ráðleg við frumræktun.“ Fjölrit nr. 26. Skeljasandur af fjörum við Faxaflóa. Kalk- magn og áhrif á sýrustig jarðvegs, eftir Sigfús Ólafsson. Þar segir frá „athugun á skeljasandi og skeljakalki. Meðalkornastærð skeljasands- ins var lítið eitt minni en skeljakalks. Kalkið í skeljasandi mældist 40—60%, en um 90% í skeljakalki. Áhrif skeljasandsins á sýrustig jarðvegs við kölkun voru svipuð og hjá skeljakalki, miðað við sama magn af hreinu kalki. Sýrustigsbreytingin var ekki verulega háð kornastærð“. Vakin er athygli á því, að sé tún kalkað að ráði héraðsráðunautar, greiði ríkið hálft kalkverð og hálfan flutn- ingskostnað til bóndans. Þó ekki skemmri veg en 50 km. Fjölrit nr. 27. Tilraunaskýrsla. í ritinu er „yfirlit um niðurstöður rannsókna í jarðrækt, fóðurverkun og búfjárrækt á ár- inu 1977“. Auk þess er fjallað í stuttu máli um veðurfar og gróður á árinu og starfsemi efnarannsóknastofu. Að lokum er birt skrá um ritgerðir. Fjölritin eru fáanleg frá Bændaskólanum á Hvanneyri á vægu verði. J.J.D. LEIÐRÉTTINGAR í skrá yfir brautskráða búfræðinga frá Hvanneyri, er birtist í 17. tbl., er nafn Haf- þórs Jóhannssonar tvískráð, en niður féll nafn Heiðars Ágústs Jónssonar, Hjarðar- holti, Fnjóskadal, S.Þing. Þá hafði nafn Sveinbjörns Rúnars Helga- sonar, Ósabakka, Skeiðum, Árn., fallið nið- ur í handriti, en hann brautskráðist bú- fræðingur frá Hvanneyri 1978. Leiðréttist þetta hér með, og eru hlutaðeigendur beðn- ir velvirðingar á mistökunum. 708 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.