Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 25
Portúgal
er eitt af fátækustu
löndum Evrópu
Portúgal er 91.500 ferkílómetrar að flatar-
máli, eða 10.000 km2 mirma en ísland.
Portúgalar hafa nú sótt um aðild að Efna-
hagsbandalagi Evrópu. Þeir eru fátækastir
þeirra þjóða, sem það hafa gert. Allmikið
er nú rætt um viðskipti okkar íslendinga og
Portúgala. Kynni milli þjóðanna hafa verið
iítii en fara nú vaxandi með auknum við-
skiptum. í eftirfarandi grein segir nokkuð
frá þessari suðrænu Evrópuþjóð, landshátt-
um og lífskjörum.
Upp af Atlantshafsströndinni er nokkurt lág-
lendi, en landið hækkar, eftir því sem innar
dregur, og verður fjöllótt við spænsku
iandamærin. Þar eru 2.000 metra há fjöll.
Loftslag er heittemprað, vetur mildir og
sumur heit og mjög þurr.
9.5 milljón manna er í Portúgal. Af þeim
fluttist um 1 milljón inn í landið á árunum
1974 og 1975 frá hinum gömlu nýlendum
Portúgala í Afríku. Fram að því fjölgaði
þjóðinni mjög hægt vegna þess, að 100—
150 þúsundir manna fluttu utan árlega til að
leita sér að vinnu annars staðar í Evrópu.
Eins og í mörgum öðrum Evrópulöndum
hefur fólki fjölgað ört á höfuðborgarsvæð-
inu, því hagvöxtur er þar meiri en í öðrum
landshlutum. í Portúgal eiga 55 af hundraði
allra bæjarbúa landsins heima í Lissabon
og grennd.
Ávaxtauppskera. Þeir eru að tína aldin af trjánum
meS handverkfærum.
Hagvöxtur.
Á árabilinu 1960—1973 var hagvöxtur meiri
í Portúgal en í nokkru Efnahagsbandalags-
landi, en þó lægri en í Grikklandi og á
Spáni. Portúgal er fátækast af þeim lönd-
um, sem nú sækja um aðild að E.B.E. Með-
altekjur á mann voru 475 þúsund kr., en
730 þúsund í næstfátækasta landinu, Grikk-
landi. Margir Portúgalar fluttu heim frá ný-
lendunum og jók það enn á vandræðin af
olíukreppunni, sem voru þó ærin fyrir. At-
vinnuleysingjum fjölgaði ört, og voru þeir
um 15% af vinnufærum mönnum 1976.
F R E Y R
709