Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1978, Síða 27

Freyr - 01.10.1978, Síða 27
Erlendir þættir ^ Bændum fækkar og ræktarland minnkar í Belgíu. Sífellt minnkar land til búskapar í Belgíu, jafnframt því, sem þeim fækkar, sem vinna við þann atvinnuveg. Nú starfa aðeins 3% vinnuíærra manna í landinu að landbúnaði og útlit er fyrir, að þeim fækki enn. Viðkvæðið hjá hugmyndasmiðum í land- búnaði í þessu EBE-landi er, að því meir, sem bændum fækki, þeim mun betur muni þeim, sem eftir eru, vegna. Sú er hugmynd- in, að eftirspurn eftir búvöru muni aukast samtímis því, sem framleiðslan skiptist á færri bændur. Aðeins öflug og vel rekin bú muni verða eftir. Slíkur hugsunarháttur er eðlilegri í landi innan Efnahagsbandalags- ins en t.d. á íslandi eða í Noregi. í Belgíu er það engum vafa bundið að halda landinu í byggð, því það er lítið og afar þéttbýlt, svo litlu skiptir, þó að ein og ein jörð falli úr ábúð. Vegna vaxandi þéttbýlis fer sífellt meira af ræktunarlandi undir vegi og hús. Belgísk- ir bændur hafa minni tekjur en iðnverka- menn þar í landi, eða að meðaltali um 70% af launum þeirra, og bilið milli tekna þess- ara stétta eykst. Blaðamaður frá Bondebla- det í Noregi, sem nýlega var í heimsókn í Belgíu, fullyrðir, að aðild að Efnahags- bandalaginu hafi ekki bætt kjör belgískra bænda. Vegna þess, að verðlag í Belgíu sé hærra en í öðrum EBE-löndum, muni sam- eiginleg landbúnaðarstefna reynast Belgum þung í skauti. 71% af fjölda, en aðeins 1.6% af flatarmáli. Þetta er þeim mun verra, sem smájarðir skiptast oft í 6—7 aðskilda teiga. Eftir bylt- inguna 1974 voru næstum öll stóru og vel reknu búin tekin eignarnámi og þeim breytt í samyrkjubú, en við það minnkaði búvöru- framleiðslan. Síðan þá hafa þó verið sam- þykkt ný jarðalög, sem mæla svo fyrir, að miklum hluta þjóðnýttra jarða sé skilað í hendur fyrri eigenda. Jarðalögin kveða líka á um bætt jarðaskipulag og meiri afköst. Þriðjungur landbúnaðarlandsins er korn- akrar, en áttungur er baunaakrar. Græn- metis- og ávaxtarækt er mikil og hefur aukist undanfarin ár. Einkum hefur tómata- framleiðslan vaxið, eða úr 200.000 tonnum 1960 í 750.000 tonn 1975. Vínframleiðslan er líka mikil, 10—12 milljónir hektólítra, sem er helmingur af vínframleiðslu Spán- verja. Búfé hefur nokkuð fækkað síðan 1973 /74. 1976 voru nautgripir 1 milljón, svín 1.7 milljónir og sauðfé og geitur um 4.5 millj- ónir. 240 milljarða innflutningur á búvöru. Vín er sú búsafurð, sem Portúgalar flytja mest út af. Það er 40% af búvöruútflutn- ingnum. Þeir flytja líka út nýja, þurrkaða og niðursoðna ávexti og grænmeti. Útflutn- ingsverðmætið nemur þó minna en helm- ingi þess, sem inn er flutt, af landbúnaðar- vöru. Mest er flutt inn af korni, sykri og jurtapróteini. Það er áætlað, að Portúgalar verði að kaupa erlendar búvörur fyrir 240 milljarða króna árið 1978. Kannski gætum við selt þeim eitthvað? Heimildir: Grein um þetta efni í Landsbladet, nr. 30, 1978 og Hagstofa íslands. — J.J.D. F R E Y R 711

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.