Freyr - 01.10.1978, Page 29
voru ialdar vikulega. I upphafi beitartímans
voru þrisvar sinnum fleiri lirfur á forarteign-
um heldur en á hinum. í beitarlok voru þær
helmingi fleiri.
í apríl árið eftir voru níu sinnum fleiri
lirfur á A-teignum en á B-teig, og það voru
um sjö sinnum fleiri ormar (Ostertagia og
Coopedia) í kálfunum. Allir kálfarnir á A-
teignum höfðu einkenni af bólgum og
skemmdum í meltingarvegi (gastroenteritis)
og þyngdust lítið, en aðeins tveir kálfar á
B-reit reyndust vera með lítils háttar iðra-
orma. Einkenni hurfu fljótt eftir meðferð
með ormalyfjum.
Þessar tilraunir voru gerðar á ungum,
móttækilegum nautgripum og líklegt er, að
áhættan væri miklu minni, ef eldri naut-
gripum er beitt á haga, þar sem for hefur
verið borin á.
The Veterinery Record
10. des. 1977. Vol 101, No. 24.
Nautgripir fitaðir á blautu
hænsnadriti.
í tilraunum í Bandaríkjunum voru ung geld-
neyti af Herefordkyni fóðruð á driti úr
hænsnahúsi. Dritið hafði verið blandað með
ýmsum rotverjandi efnum. í byrjun tilraun-
anna vógu geldneytin að meðaltali 210 kg.
Þær stóðu í 125 daga. Gripunum, 90 að
tölu, var skipt í þrjá hópa, sem allir fengu
maísvothey í aðalfóður. Einn hópur fékk
sojabaunamjöl að éta sem aðaleggjahvítu-
fóður, annar þvagefni (urea) og sá þriðji
hænsnadrit.
Að meðaltali þyngdust gripirnir um 1 kg
í öllum hópum, þó að þeir gripir, sem dritið
fengu, þyrftu að éta ögn meira en aðrir
fyrir hvert kíló, sem þeir þyngdust.
Þeir gripir, sem fengu sojabaunamjöl, átu
6.18 kg af þurrefni á dag, þeir, sem voru á
þvagefni, 6.4 kg, og drithópurinn 6.56 kg af
þurrefni.
Geldneytunum virtist ekki þykja hænsna-
dritið Ólystugt. Feedstuffs, 11. nóv. 1977.
Baggavothey líkar vel í Hollandi.
Nýlegar athuganir í Hollandi benda til þess,
að vothey í böggum (sívölum) geti lukkast.
Heyið, sem bundið var, var með þurrefni
frá 40—60%. Til þessa voru notaðar nokkr-
ar gerðir bindivéla, sem bundu 500 kg
bagga. Ein þeirra batt þó í 1100 kg bagga.
Baggarnir voru mjög saman pressaðir, lítið
loft í þeim og yfirborð þeirra tiltölulega
lítið. Þeir komu út úr heystakknum eins og
þeir voru, þegar þeir voru stakkaðir.
Ráðlegt er að stafla 500 kg böggum hlið
við hlið, fimm í neðstu stæðu, fjórum í ann-
arri og þremur efst. Síðan er þakið með
plastdúk. Þegar gefið er úr þeim, er heyið
annað hvort skorið með handverkfærum
eða undið ofan af þeim meðfram girðingu,
úti. Til þess eru notaðar dráttarvélar með
sérstökum þúnaði. Vegna þess, hve bagg-
arnir voru samanþjappaðir, voru skemmdir
á heyinu mjög litlar.
The New Zealand Journal
of Agriculture, nóv. 1977.
Áhrif gestagangs á nyt í kúm.
Athuganir, er gerðar voru á mjólk af fjórum
bæjum í Wirralsveit í Cheshire í Englandi,
eftir að kýr höfðu orðið fyrir ónæði af ó-
kunnugum, sýndu verulegt tap í nyt, fitu og
öðrum föstum efnum og einnig hærri tölu
við frumutalningu. 131 kýr var í athuguninni
af Ayrshire-, frísnesku- eða Jerseykyni. Þær
voru allar hýstar og mjólkuðu í fjósum.
Nytin í 46 kúm lækkaði að meðaltali um
0.9 kg eða meira, í 37 kúm milli 0.50 og
0.89 kg og í hinum um allt að 0.49 kg. Fitu-
prósentan lækkaði af því að kýrnar seldu
illa og föst efni minnkuðu og frumutalning
hækkaði vegna streitu hjá kúnum. Álitið er
að vegna þess, að kýrnar voru bundnar á
bás og gátu því ekki forðast gestina, hafi
áhrifin orðið meiri en ella.
The Veterinary Record
(Breska dýralæknablaSið)
22. apríl 1978, Nol 102, No 16.
F R E Y R
713