Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1978, Side 30

Freyr - 01.10.1978, Side 30
Bréf frá bændum Hjörleifur Kristinsson, Gilsbakka, Akrahreppi, skrifar: Hvers vegna má ekki fara með hestinn sinn til útlanda og koma með hann aftur? „Ég var nýlega að horfa á mót íslenskra hesta erlendis (í sjónvarpi). Þá fór ég að hugleiða, hvort ísland væri eina landið í Evrópu, sem gæti ekki sent þangað hest, svo hann ætti afturkvæmt. Vegna læknavísinda er nú hægt með talsverðu öryggi að ferðast hvert í heim sem er og koma aftur, án þess að taka hættulega sjúkdóma eða bera þá heim með sér. Þess vegna spyr ég: Hvers vegna má ekki fara með hestinn sinn til útlanda og koma með hann aftur? Gildir þetta aðeins um menn?“ Sigurður Sigurðarson, dýralæknir, svarar: Hér á landi eru smitsjúkdómar í hrossum svo til óþekktir, sem betur fer. Hrossin okkar hafa verið einangruð 1 100 ár og laus við smitálag. Það er því víst, að mótstaða í stofninum er engin eða mjög lítil gegn ýmsum alvarleg- um sjúkdómum og kvillum, sem landlægir eru erlendis. Fjölmargir sjúkdómsvaldar: veirur, bakteríur, sveppir, sníkjudýr, eins og lýs, maurar, innyflaormar, lungnaorm- ar, hrossasullaveiki, skorkvikindalirfur o.fl. hafa aldrei fundist á íslandi. Annað kastið eru að finnast nýir smitsjúkdómar er- lendis, og er þá í fyrstu engin þekking eða lítil til um smitleiðir og varnaraðgerðir. Á þessu hafa margir erlendir hestaeigendur brennt sig fyrr og síðar, og því eru í gildi strangar reglur um mót, þar sem hestar frá mörgum löndum koma saman til keppni. Áhorfendur og gestir á slíkum mótum verða ekki varir við aðhald og afskiptasemi af slíku tagi. Það fer fram fyrir og eftir mótin og utan við sýningar- og keppn- issvæðið. Þrátt fyrir aðhaldið og reglurnar verða ,,slys“. Nýir smitsjúkdómar berast með hestum til heimalandsins. Dæmi um slíkt er hrossainflúensa, sem barst til Noregs við slíkt samband fyrir fáum árum. Þó hafa Norðmenn mun strangari reglur en sumir aðrir við flutninga á lifandi gripum landa á milli. Sumir smitsjúkdómar í hrossum eru svo skæðir, að hætta getur fylgt reiðtygjum og reiðfötum 714 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.