Freyr - 01.10.1978, Blaðsíða 32
Guðjón Þórarinsson,
Lækjarbug, skrifar:
ógætilegum ráðstöfunum við innflutning dýra. Nefna má
nokkur dæmi: Fjárkláði, riðuveiki, votamæði, þurramæði,
visna, garnaveiki, hundafár, ... með fólki hafa borist
berklar, hringskyrfi, taugaveiki. . . . Hömlur eru í gildi
við flutningum á milli varnarhólfa á sauðfé, nautgripum
og geitum vegna sjúkdómahættu.
Við búum við þá ómetanlega sérstöðu að eiga hrossa-
stofn, sem er svo til laus við smitsjúkdóma. Af þeim
sökum eru engar hömlur á flutningi hrossa innan lands.
Aðeins þarf að varast óhreinindi, sem hross geta borið
utan á sér eða undir hófum og óhreinlega bíla eða flutn-
ingstæki, sem flytja hross milli varnarhólfa.
Vegna þess að hross okkar eru af einangruninni við-
kvæmari fyrir sjúkdómum en önnur hrossakyn, kemur
það oft fyrir, að íslensk hross, sem flutt hafa verið til
útlanda, hafa sýkst þar, þrátt fyrir bólusetningar og önnur
varnarráð, enda eru engar bólusetningar öruggar til
varnar.
Telja má víst, að margir smitsjúkdómar séu enn ó-
þekktir. Illa verður við komið vörnum gegn þeim.
Allt þetta veldur hinni hörðu afstöðu gegn heimflutn-
ingi hrossa, sem send hafa verið til útlanda.
Um sjúkdóma í fólki gegnir öðru máli. í fyrsta lagi
mundu frjálsræðishetjurnar góðu illa þola skerðingu á
ferðafrelsi, þótt það kynni stöku sinnum að vera æskilegt,
ef litið er eingöngu á málin frá sóttvarnarsjónarmiði. í
öðru lagi lifir fólk almennt við mun meira hreinlæti en
dýr. í þriðja lagi er heilsugæsla fólks yfirleitt margfalt
öflugri en heilsugæsla dýra og þar þarf lítt að spara til
þess, að öryggið verði sem fullkomnast, eins og sjálfsagt
er raunar. Stöðugt samþand er við útlönd og snerting við
smitvalda er sífelld. Mótstaða fólks gegn smitsjúkdómum
er því meiri en dýra. Þrátt fyrir allt þetta berast hingað
farsóttir iðulega, svo sem kunnugt er, og stundum fer
illa.
☆
Hr. ritstjóri.
Þegar ég leit yfir blaðið Frey, þ.e.a.s. ágústblaðið nr.
15, sá ég þar mynd af heybandslest, sem ég kannaðist
fljótt við, þó ekki sé þar getið um, hvaðan myndin sé,
sem mér finnst, að vel hefði mátt gera. Eða hvaðan
fenguð þið myndina til þirtingar í þlaðið? Mynd þessi
var tekin hérna af hestunum mínum sumarið 1931, er ég
var að flytja heim hey af engjum, langan og vondan veg,
716
F R E Y R