Freyr - 01.10.1978, Síða 33
þ.e.a.s. fúnar og blautar mýrar, en þeir voru komnir hér
heim á túnið og löbbuðu hver á eftir öðrum með upp-
bundna tauma, þangað til leystir voru niður af þeim
baggarnir og breiddir til þurrks. Ég gæti sett hér nöfn
allra hestanna, sem þarna voru undir böggum, en þeir
voru 10, þó þeir sjáist ekki alveg allir á myndinni.
Þetta var nokkuð erfið vinna heyskapurinn í þá daga,
nú er þetta breytt, öll heyskaparvinna er unnin með vél-
um heima á rennsléttum túnum og ekki lengur neitt
erfið, nei, bara sitjandi í hægu sæti á traktornum.
Vinsamlegast, Lækjarbug, 28. ágúst 1977.
Guðjón Þórarinsson,
Lækjarbug, Hraunhr., Mýrasýslu.
Svar til Guðjóns á
Lækjarbug:
Vegna mistaka hefur birting
þessa bréfs dregist í nær eitt ár
og er Guðjón beðinn afsökunar
á því.
Freyri þakkar Guðjóni fyrir þetta bréf og upplýsingar
þess um myndina og þau vinnubrögð, sem hún lýsir.
Myndina, það er mótið af henni, fengum við einfald-
lega í myndamótasafni Freys, og hefur hún því birst í
blaðinu áður, þó að við höfum ekki kannað, hvenær eða
hvort þar höfðu þá verið nánari upplýsingar um hana,
eða hver væri Ijósmyndarinn.
í safni Freys er allnokkuð af gömlum myndum og
myndamótum, sem sýna vinnubrögð og horfna starfs-
hætti. Þó vantar þar margt og fengur væri okkur að því,
ef menn vildu lána slíkar myndir til eftirtöku og birtingar.
Ritstjóri.
Leiðréttingar.
Prentvillupúkinn er lævís og lipur. Hann var
á ferðinni í myndatextum við grein Bjarna
Guðmundssonar Um votheysgerð í flatgryfj-
um í 14. tbl.
Hér koma leiðréttingarnar:
1. mynd: 6. lína.
í stað, sem berst með mengun komi,
sem bezt við megum.
5. mynd: 3. lína.
í stað þkkast komi þykkast og í stað sju
komi séu.
6. mynd: 5. lína.
í stað hún bæti minnkað komi
hún gæti minnkað.
3. mynd A: 3. lína.
í stað þyrgja súrefnið úti komi:
byrgja súrefnið úti.
F R E Y R
717