Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1978, Page 34

Freyr - 01.10.1978, Page 34
Ef breyta þarf fasteignamati. Bóndi á Norð-Austurlandi kom að máli við einn starfsmann Búnaðarfélags íslands, sem var þar á ferðalagi. Sagði hann, að bændur væru stundum í hálfgerðum vand- ræðum með hvert þeir ættu að snúa sér vegna breytinga á fasteignamati. Þeir þyrftu stundum að fá sitthvað fellt niður úr mati, t.d. gömul útihús, eða breyta einhverju, t.a. m. taka gripahús til annarra nota. Sjálfur breytti þessi bóndi fjósi sínu í vélageymslu, en slíkar eru í lægra mati. Bóndinn sagði ekki dæmalaust, að byggingar, sem væru orðnar ónýtar, væru enn inni í fasteignamati. Hvert eiga menn að snúa sér með þetta? spurði hann. Menn eiga að snúa sér til umdæmisstjór- anna í sínum landshluta með þetta, sagði Reynir Einarsson hjá Fasteignamati ríkisins í viðtali við Frey. Með lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94, 1976, voru skipaðir 4 umdæmisstjórar fasteignamats í landinu. Þeir eru: fyrir Vesturland og Vestfirði að Strandasýslu: Þorgrímur Stefánsson, Kveld- úlfsgötu 14, Borgarnesi. Umdæmisskrifstofa er að Borgarbraut 66, s.st., sími (93)-7320. Fyrir Norðurland að Norður-Þingeyjarsýslu: Guðmundur Gunnarsson, Glerárgötu 24, Akureyri, sími (96)-22270. Fyrir Norður- Þingeyjarsýslu og Austurland: Halldór Sig- urðsson, Miðhúsum, Egilsstöðum. Skrif- stofa er í Lyngási 12, Egilsstöðum, sími (97)-1474. Fyrir Suðurland (V.Skaft., Rang. og Árn.): Samúel Smári Hreggviðsson, Stóru-Sandvík, Sandvíkurhreppi, Árn. Skrif- stofan er að Austurvegi 22, Selfossi, sími (99)-1350. Menn ættu að snúa sér til umdæmisstjór- anna með tilkynningar varðandi fasteigna- mat og ræða við þá. J.J.D. Framleiðsla og sala á mjólk og mjólkurafurðum á síðasta verðlagsári. Á vegum Framleiðsluráðs landbúnaðarins hefur verið gert yfirlit um framleiðslu og sölu mjólkurvara fyrir tímabilið 1. septem- ber 1977 til 31. ágúst 1978. Innvegin mjólk var 117.8 millj. Itr. Aukning frá fyrra verð- lagsári var 4.6%. Meðalinnlegg í mjólkur- samlag frá framleiðanda var 44.607 lítrar af mjólk, en var á fyrra verðlagsárinu 40.675. Samtals eru mjólkurframleiðendur, sem leggja inn mjólk, taldir vera 2.670, þeim hef- ur fækkað á undanförnum árum um 3% árlega. Sala á nýmjólk hefur enn minnkað. Sam- tals voru seldar 45.2 millj. lítra af mjólk, en það var 4.4% minna en á verðlagsárinu 1976/1977. Sala á rjóma varð aftur á móti 2.9% meiri nú en á fyrra tímabili, heildar- salan var 1.1 millj. Itr. Sala á venjulegu skyri minnkaði nokkuð, en sala á bláberja- og jarðarberjaskyri varð aftur á móti meiri. Heildarsala á skyri var 3.8% meiri en á fyrra ári, salan nam 1.706 lestum. Aukning var í sölu undanrennu um 18.8%. Heildarsala á síðasta ári var 3.8 millj. Itr. Smjör. Nokkur aukning var í smjörframleiðslunni eða um 1.1%, en það voru 1.802 lestir. í upphafi verðlagsársins voru birgðir af smjöri 936 lestir, en það var 56% meira en í upphafi fyrra verðlagsárs. Samtals voru seldar beint til neyslu 1.433 lestir, en það var samdráttur frá fyrra ári um 0.7%. Notaðar í aðra framleiðslu voru 8 718 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.