Freyr - 01.10.1978, Qupperneq 35
lestir. Birgðir 1. september sl. voru 1.297
lestir, en það var 38.6% meira en í upphafi
fyrra verðlagsárs.
Ostur.
Framleiðsla á 45% og 30% ostum var 3.263
lestir, en það var 41% meira en á fyrra
verðlagsári. Nokkur samdráttur varð í sölu
á þessum ostum en veruleg aukning í sölu
á bræddum ostum. Heildarsala á öllum ost-
um var 1.402 lestir, sem var 2.4% aukning
frá fyrra ári.
Fluttar voru út á verðlagsárinu 1.842 lest-
ir, en árið áður var útflutningur aðeins 662
lestir. Birgðir af ostum 1. september sl. voru
1.419 lestir, en það var 14% meira en í
fyrra.
Neysla á ostum þreytist, því nú er meira
keypt af mögrum ostum en þeim fituríkari.
írsk búnaðarsamtök sameinast.
Tvenn búnaðarsamtök á írlandi, Irish Far-
mers’ Association (IFA) og Irish Creamery
Suppliers’ Association (ICMSA) hafa samið
um samstarf og eftir þrjú ár munu þau
sameinast að fullu. Af þessu leiðir, að írskir
bændur eru nú í einu stéttarsambandi. Árið
1972 sameinuðust mörg samtök og mynd-
uðu IFA, en ICMSA hefur alltaf staðið utan
við þetta samstarf, þar til nú.
Félagar í þessum nýju samtökum eru
175.000 írskir bændur. Enn hefur nýja fé-
lagið ekki verið skírt.
Fóðurtankar
Eigum fyrirliggjandi nokkra turna fyrir laust fóður.
Turnarnir eru framleiddir úr 1,6 mm
galvaniseruðum stálplötum og rúma 6,5 tn.
af fóðurkögglum (5,5 tn. af mjöli).
Lögun tankanna er þannig að snigils er ekki
þörf, heldur rennur úr þeim beint inn á
fóðurgang.
Hægt er að útvega tanka, sem rúma 9 tn. af
kögglum (8 tn. af mjöli).
Verðið er mjög hagstætt. Kaupfélag flrnesinga
BIFREIÐASMIÐJUR — Sími 99-1260.
F R E Y R
719