Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1979, Síða 5

Freyr - 01.08.1979, Síða 5
BÚNAÐARBLAÐ 75. árgangur nr. 15, júlí. 1979 Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAGÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON ÓLI VALUR HANSSON . p; I# , Ritstjdri: JÓNASJÓNSSON Aðstoðarritstjóri; JÚLÍUS J. DANlELS: Heimilisfang: BÆNDAHÖLIN, REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK Áskriftarverð kr. 5500 árgangurinn Hitstjórn, innhelmta, afgretðsla og auglýaingar: BændahölMnnl, Reykjavik, sími 19200 Rikisprenfsmiðjan Gutenberg Reykjavík — Sími 84522 Frá Norrænu bændasamtökunum Nythæstu kýr nautgriparæktarfélaganna 1978 Frá Stóðhestastöð B. í. 1977—1978 Júgurbólgurannsóknir. 1978 Frá Norrænu bændasamtökunum Eins og fram hefur komið í fréttum héldu Norrænu bændasamtökin (NBC) aðalfund sinn að Laugarvatni dag- ana 1. og 2. ágúst. Á fundum NBC mæta forystumenn helstu hagsmunafélaga bænda frá hverju landi, bæði be- inna stéttarsamtaka og margháttaðra sölusamtaka, svo sem einstakra afurðasölufélaga og landssamtaka þeirra. Flestir fulltrúanna eru bændur, kjörnir til forystu í félög- um sínum, en aðrir eru starfsmenn samtakanna. Fullyrða má að í þessum hópi eru þeir komnir saman, sem hafa mesta yfirsýn yfir landbúnaðarpólitík, markaðs- mál landbúnaðarins og hin margháttuðu viðfangsefni bændastéttarinnar í viðkomandi löndum. Aðalviðfangsefni fundarins á Laugarvatni var að fjalla um söluerfiðleika á landbúnaðarvörum og aðlögun landbún- aðarframleiðslunnar að þeim mörkuðum sem fyrir hendi eru. Fulltrúi frá hverju landanna 5 flutti yfirlitserindi um efnið og lýsti því hvernig málin stæðu og hvaða leiðirværu farnar í hverju landi fyrir sig. Eftir almennar umræður var málið rætt í umræðuhóp, er gekk frá áliti, sem síðar var rætt og samþykkt á aðalfundinum. Hér fer á eftir útdráttur úr áliti fundarins um þetta efni: I. Lýsing á viðfangsefninu. í iðnvæddum löndum eykst neysla á. matvörum lítið frá ári til árs. Eftir að vissum tekjum er náð, er tiltölulega lítið samband á milli verðs á flestum landbúnaðarvörum og neyslu þeirra. Hlutfallslega lítið af auknum tekjum fólksins gengur þá til þess að kaupa meiri matvörur. Mjög óveru- legur hluti af heildarmatvælaframleiðslu heimsins kemur til sölu á heimsmarkaði. Verðlag matvæla á heimsmarkaði er mikið lægra en á heimamarkaði hvers lands og stafar það mest af því hvað mikið af vörunum, sem seldar eru á milli landa, er ,,umframframleiðsla“, sem viðkomandi lönd þurfa að Josna við“. Á hinn bóginn ræður það mestu um verð varanna á heimamarkaði í iðnaðarlöndum, að stöðugt er leitast við að bændur nái sömu.tekjum og aðrar stéttir. Verð á landbúnaðarvörum á heimsmarkaði er ákaflega sveiflukennt, vegna mismunandi framboðs og eftir- spurnar. FREYR 477 2

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.