Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1979, Qupperneq 31

Freyr - 01.08.1979, Qupperneq 31
mjólkursýni úröllum mjólkurkúnum (einnig úr geldum kúm), en í nokkrum tilvikum mjólkursýni úr 2—5 kúm, er voru sérlega grunaðar um að hafa júgurbólgu. Margar gerlategundir geta valdið júgur- bólgu, og er það verkefni rannsóknastofu að greina þær, meta, á hvaða stigi júgurbólgan er, og ef um smit með klasagerlum eða staf- gerlum er að ræða, er mótstaða þeirra gegn helstu júgurbólgulyfjum jafnframt könnuð og bændum hverju sinni ráðlagt að nota lyf, sem hefir fulla verkun. Þeir gerlar, sem frá upphafi rannsókna hafa valdið mestu smiti og tjóni, eru gulir klasagerlar, sem valda um 75% af heildar- smitinu, og keðjugerill, sem á fræðimáli heitir streptococcus agalactiae. Á árinu 1978 bar mest á smiti með eftir- farandi gerlum: Gulum klasagerlum .. í 543 júgurhlutum. Gulum og str. agal. .. í 39 júgurhlutum. Klasagerlinum (Wood) í 55 júgurhlutum. Str. agal. (eingöngu) . í 101 júgurhluta. Annað smit, en í litlum mæli, orsakaðist af ýmsum öðrum gerlategundum, t. d. greind- um og ógreindum keðjugerlum, carynebakt. pyogenes og ógreindum klasagerlum. í umhverfi kýrinnar finnst jafnan fjölbreytt safn gerlategunda, sem lifa þar sníkjulífi í saur og óhreinindum. Margar þessar tegundir geta valdið ein- staka júgurbólgutilfellum, þó þeir teljist ekki eiginlegir smitgerlar (sem bera smit á milli kúa). Fer það einkum eftir samspili júgur- hreysti, hreinlæti í fjósi og réttri mjaltatækni, með gallalausum mjaltavélaútbúnaði. Ekkert júgurbólgusmit fannst í 3.604 júg- urhlutum. Eins og ég hefi oft bent á, þá er magn hvítra blóðkorna í mjólk góður og öruggur mæli- kvarði á bólguástand í júgurhluta, hverju sinni og er það alltaf rannsakað. Á þessu ári var magn hvítra blóðkorna í mjólkursýnum þetta: Guðbrandur E. Hlíðar. Tafla II. Magn hvítra blóðkorna/mlTala sýna % Ástand Undir 500 þús . 3 094 69,82 Gott 500 þús. — 1 000 000 .. 255 5,75 Væg bólga Yfir 1 000 000 . 1 083 24,43 Krónísk eða bráð bólga Júgurbólga, krónisk eða bráð (subklinisk eða klinisk) fannst í tæplega fjórða hverjum smituðum júgurhluta, en smit (væg bólga) í 5,75% að auki. Eins og að vanda var kannað næmi fúka- lyfja gegn öllum klasagerlum og stafgerlum vegna þess, að þeir eru oft ekki næmir fyrir algengustu júgurbólgulyfjum, eða hafa með tímanum öðlast ónæmi (mótstöðu) gegn þeim. Læt ég nægja að gera Ijósan samanburð á verkan tveggja lyfjategunda, sem mjög eru notaðar hérlendis. Mótstöðukannanirnar voru gerðar á 685 gerlastofnum, langmest gulum klasagerlum, með eftirfarandi niðurstöðu: Lyf Full verkan (+ ++) % Penicillin ........ 357 stofnar 52,11% Orbenin ........... 684 stofnar 99,85% Þess skal getið, að einstaka tilfellum valda júgurbólgugerlar, sem hvorugt þessara lyfja vinnurá.og komaþáönnursérlyftilgreina. Því FREYR 503

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.