Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 34

Freyr - 01.08.1979, Blaðsíða 34
Stórsekkir fyrir áburð. Sekkjun áburðar í stærri umbúðiren nú tíðk- ast eykur afköstin og sparar vinnu þar sem hægt er að koma slíku við. Norskir bændur hafa undanfarin ár notað stórsekki frá Norsk Hydró við geymslu og flutning áburðar. Eru sekkirnir hífðir með lyftikrók á dráttarvéla- gálga, sem stungið er í hanka efst á pokan- um. Skorið er gat á pokann, þegar hann hangir yfir áburðardreifara eða vagni. E.T.V. má segja, að hönnun og meðferð pokanna sé enn á tilraunastigi. Gerðhefurveriðtilraun meðslíka sekki hér á landi og var fyllt á þá í Áburðarverksmiðj- unni og þeir notaðir af Landgræðslunni í Gunnarsholti. Þeim landgræðslumönnum lýst mjög vel á þetta fyrirkomulag og telja að það geti orðið til mikils vinnuléttis, þegar kominn er sá tækjabúnaður, sem þarf til að fylla á sekkina og láta þá á bíla. Bandaríkjamenn kaupa mjólkina í gallónatali Einnota flöskur úr plasti í gallónamáli (3,8 lítrar) eru orðnar vinsælastar mjólkur- umbúða í Bandaríkjunum. Árið 1977 seldist um helmingur allrar neyslumjólkur vestra í gallónamáli og meiri hluti umbúðanna var einnota brúsar úr plasti. Um þriðjungur mjólkurinnar er seldur í hálfsgallóns brúsum. Mjólkin er líka seld í pappaumbúð- um og í fjölnota plastflöskum, en þó í litlum mæli. Smásala á mjólk hefur sífellt færst meir til risakaupgarða (supermarkets). Áður var mjólkinni keyrt heim til kaupenda, en nú hef- ur því verið hætt að mestu. Ekki er lengra en 12 ársíðan, að fjórðungur neyslumjólkur var færður kaupendum heim, en 5% áratug síðar. Menn geta valið á milli eins — tveggja — og þriggja prósenta feitrar mjólkur þar vestra. Auk þess fæst eggjahvítubætt mjólk. Fitusnauða mjólkin hefur verið fjöre/na- bætt. Mjólkin er gerilsneydd og sölutíminn er mismunandi eftir ríkjum, þetta 10—14 dagar. Milljón mjólkurlítrum spillt vegna fannfergis á Skáni. Skánskir bændur urðu í vetur að hella niður milljón lítrum af mjólk, sem þeir komu ekki í mjólkursamlögin vegna ófærðar eftir ára- mótin. Stjórnir mjólkurbúanna þar ákváðu, að auk verðjöfnunargjalds, sem greitt er úr eigin verðjöfnunarsjóði bænda, skyldi bændum greitt fullt verð fyrir þá mjólk, sem spillt var. Allir félagar í mjólkursamlögunum tóku því á sig að styrkja þá mjólkur- framleiðendur, sem urðu illa úti vegna fann- fergis. Fóðurtankar Eigum fyrirliggjandi nokkra turna fyrir laust fóSur. Turnarnir eru framleiddir úr 1,6 mm galvaniseruðum stálplötum og rúma 6,5 og 9 tn. af fóðurkögglum (5,5 og 8 tn. af mjöli). Lögun tankanna er þannig að snigils er ekki þörf, heldur rennur úr þeim beint inn á fóðurgang. VerSiS er mjög hagstætt. Kaupfélag Arnesinga BIFREIÐASMIÐJUR — Simi 99-1260. 506 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.