Freyr - 15.12.1979, Side 20
Agnar Guðnason:
Framleiðslukvóti á sauðfjár-
og nautgripaafurðir
Nokkurs misskilnings virðist gæta hjá mönnum varðandi framkvæmd kvóta-
kerfisins, sem ákveðið var í lögum, sem samþykkt voru á Alþingi síðastliðið
vor. Héráeftirverðurstuttlegagerð grein fyrir þessu kvótakerfi með nokkrum
dæmum. Rétt er að taka fram, að mjög mikil óvissa er enn um framkvæmd
kvótans.
Það er ekki vitað um, hvort breytingar verða gerðar á útflutningsbótum, það
veitenginn um, hver innanlandssala verður á búvörum næsta ár, og ómögu-
legt er að segja fyrir um framleiðslu ársins. Skerðing á greiðslum til bænda
getur því orðið minni en gert er ráð fyrir nú, og hugsanlega gæti hún orðið
meiri.
Við útreikning á kvótanum er miðað við óbreytt ástand, en að sjálfsögðu
verður að taka kerfið til endurskoðunar, ef forsendur breytast.
Minni framleiðsla, hlutfallslega hærra
einingaverð.
Bændum er það í sjálfsvald sett, hvort þeir
auka framleiðsluna, halda henni óbreyttri
eðadragasaman. Framleiðendurfáfulltverð
fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar, en út-
flutningsverð fyrir það, sem umfram er.
Þetta er frábrugðið því kerfi, sem bændur
hafa búið við fram að þessu, að því leyti, að
þeir, sem framleiða mest, munu taka á sig
hlutfallslega meiri halla af útflutningi en
verið hefur. Það má einnig halda því fram, að
bóndi, sem dregur saman framleiðsluna af
sjálfsdáðum, miðað við það, sem hann
framleiddi undanfarin þrjú ár, verði verð-
launaður með hærri greiðslum fyrir afurð-
irnar en hann hefði fengið miðað við óbreytta
framleiðslu eða aukna framleiðslu.
í ályktun Framleiðsluráðs landbúnaðarins
frá 12. október sl. segir: ,,Verði samdráttur í
búvöruframleiðslu einstakra framleiðenda
frá viðmiðunarárunum, minnkar verðskerð-
ing um 1 prósentustig fyrir hvert 1% fram-
leiðsluskerðingar“.
Kvóti mjólkurframleiðenda.
Eftirfarandi dæmi skýra nokkuð, hvernig
þessi kvóti er hugsaður:
Mjólkurframleiðandi hefur lagt inn í
mjólkursamlag að meðaltali undanfarin 3 ár
60.000 lítra af mjólkáári. Á árinu 1980 leggur
hann inn sama mjólkurmagn, hann fær fullt
826
FREYR