Freyr - 01.12.1983, Side 9
Endurskoða þarf
leiðbeiningastarfsemi búnaðarsambandanna
segirÆvarr Hjartarson héraðsráðunautur.
Starf mitt er einkum við framkvœmdarstjórn Búnaðarsambandsins og meiri hluti tíma
mínsfer í að sinna því, auk þess sem afleysingaþjónustan er á mínum vegum. Pá höfum
við Guðmundur Helgi verið að fást svolítið við nýtt form í búreikningum á liðnu ári og
nú á þessu ári. Ég hef reynt að sinna loðdýrarcektinni ofurlítið, en tími til þess hefur
verið af skornum skammti.
Búreikningar með nýju sniði
Hér á svæðinu halda tólf eða
þrettán bændur búreikninga fyrir
Búreikningastofuna og þeim hefur
ekki fjölgað á liðnum árum. Nú er
hér í gangi tilraun með nýja gerð
búreikninga til þess að fá fleiri
með og reyndar líka til þess að
gera þetta á auðveldari hátt en
tíðkast hefur. Það er reist á því að
við nýtum okkar tölvutækar upp-
lýsingar úr viðskiptareikningum
bænda í kaupfélaginu. Þar í gegn
fer mestur hluti viðskipta
bóndans. Við reynum að vinna
þetta þannig að það sé auðvelt
fyrir bóndann að koma þessu á
rétta rekstrar- og tekjuliði. Þetta
hefur lukkast allvel en reynslan
hefur sýnt okkur ýmsa annmarka
sem við reyndum að breyta til
bóta um sl. áramót.
Hvað er langt í það að farið verði að
nota tölvur við leiðbeiningaþjónustu
hér líkt og gert er í Danmörku?
Það er kannski spurning um það
hvað þær leiðbeiningar geta verið
víðtækar með tölvunotkun en við
stefnum að því að hagnýta okkur
þessa tækni. Við höfum rætt við
Kaupfélag Eyfirðinga um það að
komast í beint samband við tölvu-
deild þeirra á þessu ári. Það er að
vísu nokkuð dýrt, en ég álít að það
ætti að auka mjög afköst við
leiðbeiningar. Við höfum hug á
% UaJÍé m ’J'ý1
á 19 1Gm 9
A i B
/ kaffihléi í Óseyri 2. F. v. Sigtryggur Stefánsson, Ólafur Vagnsson, Guðmundur Helgi Gunnarsson, Bjarni Guðleifsson,
Guðmundur Steindórsson, Jósavin Gunnarsson og Þórarinn Lárusson. (Ljósm. J. J. D.).
FREYR — 937