Freyr - 01.12.1983, Side 17
Hjörtur á Tjörn veitti fyrstu sœðingastöð-
inni forstöðu. Hér er hann að blanda
nautasœði árið 1948.
Dimma 70 í Syðra-Holti entist vel og mjólkaði mikið af góðri og feitri mjólk.
Syðra-Holts hjónin, Ásdís og Sigurður, hafa lengi átt eitt af afurðasömustu kúabúum á
landinu. En þau hafa líka átt góða hesta. Pessir gœðingar eru hálfbræður. Stígandi,
sem Sigurður silur, lék Hvíting t kvikmyndinni „Landi og sonum". Ásdís situr
Smára.
lengi verið með eitt af afurða-
sömustu kúabúum á landinu.
Fengu þau verðlaun BSE 1983
fyrir góðan árangur í nautgripa-
rækt, en þeir Hríshólsfeðgar
Hreinn og Sigurgeir og Viðar á
Brakanda höfðu áður fengið þau
verðlaun.
Eyfirðingar hófu fyrstir hér á
landi að sæða kýr árið 1946 og
stofnuðu þá nautastöð og sæð-
ingastöð á Grísabóli á Akureyri.
Hjörtur E. t>órarinsson, nú bóndi
á Tjörn veitti henni forstöðu
fyrstu árin. Allt sæði kemur nú frá
Nautastöð Búnaðarfélags íslands
á Hvanneyri. Sæðingarmenn í
Eyjafirði eru þeir Hermann Jóns-
son, Páll Jónsson Rafn Arin-
björnsson sem hefur bækistöð á
Dalvík og Gunnsteinn Sigurðsson.
Guðmundur er í stjórn Ung-
mennasambands Eyjafjarðar og
gegnir þar gjaldkerastörfum.
Það hefur alltaf verið gott á
milli U.M.S.E. og Búnaðarsam-
bandsins sagði Guðmundur. Með-
an þessi tvö félagasamtök leigðu
húsnæði í gömlu byggingunni á
Óseyri 2 styrkti BSE Ungmanna-
sambandið með því að borga
húsaleigu þess. Og eftir að BSE
flutti í sitt eigið húsnæði þarna
1982, lét það U.M.S.E í té endur-
gjaldlaust skrifstofu og fundarað-
stöðu. Þessi stuðningur er auðvit-
að afar mikilsverður fyrir Ung-
mennasambandið. Og Guðmund-
ur sýnir mér skrifstofu U.M.S.E.
sem er prýdd myndum og munum
frá félagsstarfinu og oddveifum og
fánum sambandsfélaga og annarra
samtaka.
J.J.D.
FfíEYfí — 945