Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1983, Side 36

Freyr - 01.12.1983, Side 36
Bændur eru traustir og skemmtilegir viðskiptavinir segir Júlíus Halldórsson, forstjóri Búvéla hf. í samtali við Frey Pegar ég fór að litast um eftir góðum vélum til að selja tók ég fyrst eftir Fendt- verksmiðjunum, sem eru þekktar í Þýskalandi fyrir vandaða framleiðslu, sagði Júlíus Halldórsson forstjóri Búvéla hf, í samtali við Frey. Júlíus Halldórsson. Fendt-dráttarvélar eru í hópi þriggja söluhæstu traktoranna í Þýskalandi. Byggist það á því, að þeir hafa bætt verksmiðjukost sinn og nota nýjustu tækni til fullnustu. í stað þess að framleiða dráttarvélar fyrir ákveðið verð hafa þeir lagt áherslu á góðar, háþróaðar og liprar vélar sem þeir álíta að henti markaðinum. Peir hafa reynt að lækka tilkostnað með hagkvæmum framleiðsluað- ferðum. Samt eru Fendt-vélar með þeim dýrari á markaðinum vegna þess hve þær eru vandaðar. Þessi stefna fyrirtækisins hefur þó borið þann árangur að nú á þreng- ingartímum hjá bændum hafa þessar vélar skilað bestri arðsemi og reynst hagkvæm fjárfesting þegar miðað er við lengra rekstrartímabil. Verkhæfni, þæg- indi og vandaður búnaður kemur þar að auki. Fendt-dráttarvélin var hin söluhæsta í Þýskalandi á fyrra helmingi þessa árs. „Ég hef þá trú“, sagði Júlíus Halldórsson, „að Fendt-vélin fái góðar viðtökur hjá íslenskum bændur, en þeir eru orðnir mjög fróðir tæknilega“. Fendt er fimmtugt fjölskyldu- fyrirtæki með aðsetur í Bæjara- landi í nágrenni við tæknirisana Bosch, BMW, MAN og Mercedes- Benz. Fendt hefur sérhæft sig í drátt- arvélasmíði, og þeir eru að því leyti frábrugðnir öðrum dráttar- vélaframleiðendum, sem flestir eru með fjölþætta framleiðslu. Hvaða fleiri véiar selur fyrirtæki þitt? Við seljum ýmsar aðrar land- búnaðarvélar frá fyrirtækjum, sem samkvæmt reynslu og áliti bænda í nágrannalöndunum hafa skorið sig úr, þ. á m. frá Lands- berg og Bayerische Pflugfabrik. Frá þeim koma plógar, hey- hleðsluvagnar, jarðtætarar og ámoksturstæki. Þá seljum við einnig Himel heydreifikerfi með tölvustýrðum dreifistút. Við seljum Rauch dreifara fyrir tilbúinn áburð. Þetta eru ending- argóðir dreifarar úr ryðfríu stáli sem ekki tærist. Þá erum við með Hagedorn kartöfluupptökuvélar. Þær eru þekktar fyrir að fara vel með kartöflur við upptöku. Búnaður fyrir ullarkanínurækt Vegna sambanda við bændur hér, var ég fenginn til að vera leiðsögu- maður nokkurra bænda, sem hugðust leggja fyrir sig ullar- kanínurækt sem aukabúgrein. Ferðuðumst við milli kanínurækt- enda í Þýskalandi, þar sem kaup á ullarkanínustofni voru ákveðin. Fendt- dráttarvél með heyhleðsluvagn. 964 — FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.