Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1983, Page 33

Freyr - 01.12.1983, Page 33
Ritfregnir Fra kjötsupu i gloöarsteikina. Þrátt fyrir að meðalneysla á kindakjöti á íslandi hafi verið og sé með því mesta sem gerist í heiminum, þá hefur matreiðsla á því verið mjög einhæf alveg fra- mundir þetta. Flestir sem komnir eru yfir fertugt muna þá tíma, sem dilkakjöt var oftast soðið í kjöt- súpu og til hátíðarbrigða var höfð smásteik eða þá hangikjöt. Nú hafa tímar breyst og sífellt er fólk að reyna nýja framandi rétti úr kindakjöti. Almenna bókafélagið hefur gef- ið út bók um lambakjöt. Þar er að finna mikinn fjölda matarupp- skrifta. Sigrún Davíðsdóttir hefur þýtt og staðfært bókina. Vonandi verður þessi myndar- lega útgáfa til þess að við höldum sessi okkar sem heimsmethafar í kindakjötsáti og njótum þess enn- þá betur með því að hafa fjöl- breytnina sem mesta í matreiðslu á kindakjöti. Ekki er þó alveg öruggt að allir séu sammála því sem stendur í bókinni, um meðferð á kjötinu. Það er til fólk sem telur að fita á lambakjöti sé hreinasta lostæti og lætur sér ekki detta í hug að skera hana burtu áður en kjötið er mat- reitt. Leiöréttingar í greinum Páls Bergþórssonar í 20. og 22. tölublöðum hafa slæðst inn villur. í töflu á bls. 834 í 20. tbl. eru tvær villur. í fyrirsögn hennar eiga að standa árin 1971—1980 en ekki 1977—1980. Neðst í þriðja dálki sömu töflu á að standa: Meðaltal 6. maí, en ekki 2. maí. í almennum leiðbeiningum í inngangi bókarinnar er ráðlagt að skera mestu fituna burt, því ann- ars geti tólgarbragð síast inn í kjötið. Þeir sem vilja hafa tólgar- bragðið láta auðvitað fituna fylgja kjötinu, en þeir sem eru í megrun eða fellur ekki vel við fitu fjar- lægja hana af kjötinu áður en það er matreitt. Það eru margir mögu- leikar í matreiðslu á kindakjöti, miklu fleiri en forfeðurnir höfðu hugmynd um eða létu sig dreyma um þegar þeir rifu í sig spikfeitar sauðasíður. U.Þ.L. í myndatexta á bls. 911 í 22. tbl., annarri línu, á að standa 1846—1900 en ekki 1946—1900. Á bls. 913, 1. dálki frá vinstri, annari línu að ofan á að standa: er raunar 50% meira en talið er, en ekki: er raunar 5% meira en talið er. Blaðið biðst velvirðingar á þess- um villum. í honum köfnunarefni. Það er því óhætt að nota mikið af sandinum án þess að eiga á hættu að ofbjóða plöntunum með köfnunarefni. Hins vegar er jafnmikil hætta á að ofkalka með skeljasandi og áburð- arkalki. Ég tel óráðlegt að nota meira en 5—10 tonn af sandi á ha í einu ofan á grasrót. Öðru máli gegnir þegar sandinum er blandað saman við jarðveginn um leið og hann er herfaður eða tættur. Þá má bera á meira í einu. í óhreinsuðum skeljasandi eru steinar, sem kunna að valda erfið- leikum við dreifingu og síðari vinnu á túni, en þeir hverfa ofan í jarðveginn, ef sandurinn er herf- aður niður. Ég hygg að hentugt sé að nota áburðarkalk á tún en skeljasand í flög. III. Innflutt áburðarkalk. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það. Innflutta kalkið er fljótvirkara en hið innlenda vegna þess hve miklu fíngerðara það er. Það er mun dýrara en sandurinn og hefur verið notað í garðyrkju, en ástæðulaust tel ég vera að nota það á tún. Lokaorð. Tilefni þessa greinarkorns er grein eftir Guðmund P. Valgeirsson í Bæ í Trékyllisvík, en hún birtist í 17. tbl. Freys 1983. Þar biður Guðmundur mig um að benda sér á leiðir til að fá kalk heim til sín. Ég þykist hafa gert það hér að framan. Ég skal í lokin draga það saman í fáeinar setningar. Áburðarkalk frá Áburðarverk- smiðjunni hentar vel á tún. Það er sú kalktegund, sem fyrirhafnar- minnst er að verða sér úti um, auk þess sem auðvelt er að dreifa því. Skeljasandur, hvaðan sem hann kemur, getur verið ódýrasta kalk- ið, einkum þó ef bændur beita samtakamætti sínum eins og þeir í Kjósinni og kaupa heila skips- farma af sandi í stað þess að vera hver og einn að flytja kalkið á vörubílum langar leiðir. FREYR — 961

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.