Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1983, Page 31

Freyr - 01.12.1983, Page 31
Jósavin Gunnarsson byggingarmeistari sinnir m. a. fasteignamatsmálum hjá embœtt- inu. (J. 3. D.). geti sjálfir gengið frá þeim málum. Hins vegar finnst mér það svo- lítið sorglegt að sumir hafa haldið að við værum einskonar svipa á þá og værum að auka byrgðina og eiginlega til trafala. Það hefur lengi legið í landi að menn, sér- staklega bændur, vilja gera hlut- ina eftir sínu höfði, en lög eru nú einu sinni lög og þeim verður að framfylgja. En bændur borga ekk- ert meira fyrir það þó við komum til þeirra. Þessi kostnaður dreifist á alla íbúa svæðisins. Hver greiðir kostnaöinn við skrifstofu byggingafulItrúa? Stofnlánadeildin greiðir 30% af honum, síðan tökum við sam- kvæmt lögum leyfisgjöld af öllum byggingum sem samþykktar eru. Það sem á vantar dreifist á ibúana eftir höfðatölu. Sem dæmi um þann kostnað þurfti hver íbúi að greiða 143,00 krónur í fyrra. Og þá erum við hér tveir menn, sem önnumst þessa þjónustu og höfum hér eins og þú sérð fyrirmyndar húsnæði. Ég vil líka taka fram að geysileg hagræðing varð að því þegar við fluttum í lok ársins 1981 í sama hús og búnaðarráðunautarnir, eru og Rannsóknastofa Ræktunarfélags Norðurlands. Hér geta menn komið og fundið alla þessa aðila undir sama þaki. Aðstoðarmaðurinn er bygginga- meistari og bóndi. Jósavin Gunnarsson er bygginga- meistari og hafði auk þess unnið um árabil við landbúnaðarbygg- ingar. Hann er ættaður úr sveit og er að svolitlum parti til bóndi enn á bæ hér í nágrenninu. Og ég tel að ég hafi haft miklu meira gagn af honum heldur en að ráða ein- hvern sprenglærðan tæknimann, sem mest af æfinni hefur þá setið við teikniborðið og lítið gert að því að negla. Hann hefur reynst hinn ágætasti starfsmaður og vel í stakk búinn að ráðleggja mönnum í smáatriðum hvernig þeir skuli standa að hlutunum. Bændur eru ekkert annars flokks fólk. Þessar nýlegu breytingar á bygg- ingalöggjöfinni hafa átt erfitt upp- dráttar í flestum héruðum á landinu og það eru hreinustu mis- tök. Bændur eru ekkert annars flokks fólk sem ekki getur greitt gjöld samkvæmt lögum eins og aðrir og ég er ekkert viss um að þeim þyki neitt vænt um það að einhverjir séu að gefa þeim eitthvað sem þeir eiga lögbundið að borga. Enda hafa engir fjár- hagslegir árekstrar orðið um rekstur þessa embættis. Við höfum aftur á móti þá hug- mynd hér að víkka eigi starfssvið þessarar skrifstofu, á henni eigi að vera hliðargrein sem þjóni litlu þéttbýlisstöðunum betur á þessu svæði. Við viljum geta aðstoðað þá við vanalegar mælingar og teikningar á götum og slíkt. Sú starfsemi má þó ekki vera lög- bundin byggingafulltrúaembætt- inu þar sem það á að vera þjón- ustuskrifstofa. En þá myndu smá- þorpin greiða fyrir þessa þjónustu tímakaup sem væri í hlutfalli við mánaðarlaun viðkomandi starfs- manns og yrði hún því ekki seld á topptaxta tæknimanna. Það er þegar kominn að þessu vísir, til dæmis höfum við hér aðstoðað mikið smáþorp eins og Árskógssand og Hauganes og töluvert í Hrísey. Fasteignamat. Með nýju reglugerðinni tókum við allt fasteignamat og allar upplýs- ingar gagnvart opinberum stofn- unum sem sveitarstjórnir hafa þurft að láta í té. Og frómt frá sagt var mjög slæmt ástand varðandi fasteignamat. Bæði voru þar inni í byggingar sem búið var að rífa. Þar að auki voru stærðir bygging- anna oft rangar. Það tók Jósavin Gunnarsson upp undir ár að reyna að koma þessu í nokkuð gott horf. Auk þess var mjög algengt að hús kæmust ekki inn í fasteignamat í mörg ár eftir að þau voru byggð. Þar sem hér er um að ræða einn af tekjustofnum sveitarfélaga er þetta ekki lítið atriði. Allar aðrar upplýsingar um byggingafram- kvæmdir á svæðinu sem hið opin- bera þarf að fá að vita um eiga að fara um þessa skrifstofu. Sveitar- stjórnarmenn eru velkomnir hing- að með öll sín vandamál hvað þetta snertir. Við reynum að leysa úr því eftir bestu getu. J. J. D. FREYfí — 959

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.