Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 8
Sturla Friðriksson,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Sólarorka í íslenskum landbúnaði
Eftirfarandi grein um orkuflœði frá sólarljósi um gróður og dýr til manns í íslensku
lífríki eru bollaleggingar, sem voru settar fram á ráðstefnu, er haldin var í Reykjavík
7. apríl 1983 um orkunotkun og orkusparnað í landbúnaði. Hugmyndir þœr semfram
koma byggjast að nokkru leyti á íslenskum og erlendum mœlingum en sumt á tilgátum,
er nœgar upplýsingar hafa ekki verið fyrir hendi. Eru skýringarmyndir birtar sem drög
að heildarmynd af orkuflœði og gerðar í mjög grófum dráttum. Vafalaust þarf að
leiðrétta ýmsa þœtti þeirrar myndar sem hér er birt og fylla út í óvissa þœtti með
raunhœfari tölum. Um þetta sama efni hefég áður fjallað í bók minni Lífog land, 1973, í
ritinu Maður og umhverfi 1979 og í riti með framsöguerindum frá fyrrnefndri ráðstefnu
1983.
Af allri þeirri orku, sem árlega
streymir út frá okkar sól, fellur
10 000 milljónasti hluti að gufu-
hvolfi jarðar eða um 13xl020 kílo-
kaloríur (hitaeiningar). Aðeins
um fimmti hluti þeirrar orku eða
um 2,6xl020 kcal kemst að yfir-
borði jarðar. Mesti hluti orkunnar
endurkastast hins vegar frá gufu-
hvolfi, eða er gleyptur og um-
myndast í hita eða fer til uppguf-
unar. (1. mynd).
Árlegt orkumagn sem jörðinni
hlotnast er mismikið eftir þvf hvar
á hnöttinn geislarnir falla.
Við miðbaug falla árlega um 2
milljónir kcal af orku á hvern
fermetra lands. Hér á landi er
árleg orka, sem fellur á hvern
fermetra tæpar 800 000 kcal.
Orkumagnið er einnig eðlilega
mismikið eftir árstíma. Er dagleg
meðalorka í Reykjavík í desem-
bermánuði um 40 kcal á fermetra,
þegar sólargangur er hvað stystur
og sól lægst á lofti, en sumarmán-
uðina maí, júní og júlí er sú orka,
sem fellur á hvern fermetra, yfir
4 000 kcal á dag. Orkumagn það,
sem skilar sér til jarðar, er nokkuð
breytilegt eftir skýjahulu, og eru
því bæði árlegar sveiflur í orku-
magni og magnið einnig breytilegt
eftir landssvæðum. Aðeins hluta
af þessari orku geta grænar plönt-
ur notað. Af yfirborði jarðar, sem
er 510 milljón km2 er land um 148
milljón km2 en haf um 362 milljón
km2.
Er talið að árlega bindi allar
Mynd 1. Sjá skýringar í texta.
plöntur jarðar á láði og legi
5,2xl017 kcal og nýti þannig um
0,2% sólarorkunnar. Ekki fellur
öll þessi orka á gróin svæði, en
nýting sólarorku, sem raunveru-
lega fellur á gróður jarðar, er um
1%. Orkunýting sjávarplantna er
þar meðtalin, en hún er að jafnaði
SÓLARORKA AÐ JÖRO
2^x|QZOl.cnl
JÖRO
88 — FREYR