Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 28
Einar Hannesson
Veiðimálastofnun
Veiðimál í landnámi Ingólfs
í yfirliti þessu er fjallað um veiðimál í Gullbringusýslu, Kjósarsýslu og Reykjavík.
Svipuð úttekt um aðra landshluta nema Norðurland eystra, hefur áður verið gerð af
greinarhöfundi og birt í Frey.
Mestur hluti landsvæðisins sem nú
eru gerð skil er á Reykjanesskaga,
eins og kunnugt er, og er aðeins
um 1,8% af flatarmáli landsins.
Syðri mörk svæðisins eru sýslu-
mörk Gullbringusýslu og Árnes-
sýslu við sjó hjá svonefndri Selja-
bót, sem er skammt vestur af
Herdísarvík í Selvogi. Nyrðri mörk-
in eru hins vegar við Múlafjall við
botn Hvalfjarðar. Merkjalína um
svæðið inn til landsins liggur nær
öll að Árnessýslu, en hitt að Borg-
arfjarðarsýslu, upp frá Hvalfjarð-
arbotni í Botnssúlur. Meginstefna
línunnar þaðan er í suðvestur og til
sjávar hjá Seljabót, sem fyrr var
getið um.
Straumvötn eru tiltölulega fá
miðað við sjávarstrandlengju
svæðisins. Ástæðan er augljós þar
sem eru víðáttumiklir hraunflákar
Reykjanesskagans og láglendi
Suðurnesja. Hins vegar er staðan
hvað varðar stöðuvötn og tjarnir á
svæðinu mun betri, þó að vötnin
teljist yfirleitt til smærri stöðu-
vatna landsins nema Kleifarvatn,
sem er 9,1 km2 og er 14. í röð
stærstu vatna á landinu.
Laxveiðiárnar.
Laxveiðiárnar eru sex og allar í
Reykjavík og Kjósarsýslu, en þær
eru: Laxá í Kjós ásamt Bugðu,
sem er með 211 km2 aðrennslis-
svæði, Elliðaár, 280 km2,
Leirvogsá með 85 km2, Úlfarsá
(Korpúlfsstaðaá) með 54 km2,
Brynjudalsá, 42 km2 aðrennslis-
svæði og Bleikdalsá (Ártúnsá).
Vatnasvið þessara straumvatna er
því um 700 km2 og er það 0,7% af
vatnasvæði alls landsins. Árnar
eiga allar nema ein upptök í stöðu-
vatni. Auk þessara áa eru nokkur
smærri vatnsföll, sem silungur er í,
eins og Grafarholtslækur, Vífils-
staðalækur, Hafnarfjarðarlækur,
Kiðafellsá og Skorá í Kjós. Einnig
má nefna Fossá í Hvalfirði, sem er
reyndar ófiskgeng vegna foss í
ánni niður við sjó.
Silungsvötnin.
Helstu silungsvötnin eru Meðal-
fellsvatn í Kjós (2,0 km2), Elliða-
vatn (1,8 km2), Kleifarvatn,
Djúpavatn, Hafravatn, Leirvogs-
vatn, Selvatn, Vífilsstaðavatn, en
auk þess má nefna stöðuvötnin
Sandvatn og Myrkavatn. Þá er
Eldistjarnir í Kollafirði, teknar í notkun árið 1980. Sigurður Pórðarson stöðvarstjóri er
á myndinni. (Ljósm.: Einar Hannesson).
108 — FREYR