Freyr - 01.02.1984, Blaðsíða 19
Molar
*• m’>
•»!*
Loðdýrog flugumferð
Eitt það versta sem fyrir loðdýra-
bændur kemur er að flugvélar fljúgi
yfir bú þeirra á gottíma. Bæði refir
og minkar eru viðkvæmir á þess-
um tíma og mikil umferð eða
hávaði getur valdið mjög miklu
tjóni. Akjósanlegt er að sem
minnst truflun verði á dýrunum á
öllum árstímum, það er því mikils
virði að flugmenn reyni eftir
fremsta megni að forðast að fljúga
yfir loðdýrabú og haldi sig sem
lengst frá þeim.
Oll loðdýrabú eiga að vera vel
merkt þannig að flugmaður geti
áttað sig á hvers konar staðir þetta
eru. Merkið er hvítur þríhyrningur
og inni í hringnum er stórt rautt
„P“. Samkvæmt alþjóðlegum regl-
um eru fyrirmæli um að þríhyrn-
ingurinn skuli vera minnst einn
metri á hlið, en Sigurjón Bláfeld,
loðdýraráðunautur Búnaðarfélags
Islands, er á því að þríhyrningur-
inn verði aldrei of stór, því að
aðalatriðið er að merkið sjáist vel
úr lofti. Hann mælir því með að
hafa þríhyrninginn allt að 3 metra
á kant.
Nú er að vona að allir flugmenn
þekki merkið og að allir loðdýra-
bændur hafi þegar málað á þök
ioðdýrabúa sinna þríhyrninginn og
péið.
U.þ.l.
Smjör&Ostur
Hreysti og glaðlyndi úr nestispakkanum.
Ostur er alhliða fæðutegund. Úr honum fá
börnin eggjahvítuefni (protein), vítamln og
nauðsynleg steinefní, þ. á m. óvenju mikið
af kalki. Kalkið er nauðsynlegt eðlilegri
starfsemi taugakerfisins. Smjörið veitir
þeim A og D vítamín. A vítamín styrkir t. d.
sjónina og D vitamin tennurnar.
(
■■■■■■■
:■:■:■:■■■/
Gefiö þeim smjör og ost í nestið.
bók við hendina og taka fram
númer bókarinnar blaðsíðunúmer
og númer hlutarins á síðunni.
Þessi atriði minnka hættuna á að
fá rangan hlut afgreiddan.
Að lokum vil ég minna bændur
á þjónustu Búnaðarfélagsins í
sambandi við varahlutaútvegun.
Skrifið eða hringið.
Heimilisfangið er:
Varahlutaþjónusta Búnaðarfé-
lags íslands,
Bændahöllinni,
127 Reykjavík.
Altalað á kaffistofunni_____________________________
Lítið kynnst hásetum
Eins og þeim er ljóst sem lagt hafa það á sig að lesa bækur mínar,
hefur það ávallt verið skemmtun mín og jafnvel ástríða að kynnast
fólki. Það kalla ég að stunda nám í lífsins skóla. Mér hefur að vísu
ekki gefist nema takmarkaður kostur þess, að blanda geði við
háskólaborgara, háspekinga, né aðra þá sem kenndir eru við orðið
há í daglegu tali.
Úr bókinni „Fólk sem ekki má
gleymast", bls. 179, eftir Jón Bjarnason
frá Garðsvík.
FREYR — 99