Freyr - 01.02.1984, Page 12
NÝTING SÓLARORKU
Á GRÓÐURLENDI ÍSLANDS
O
12*10
13x10* °kcal orka úr landbúnaðarafurðum
er ársþörf fyrir 142 þús. manns.
Á. 5. mynd er sýnt orkuflæði frá gróðri til búfjár. Aðeins hluti af gróðri
landsins (65%) kemur mantii og húsdýrum hans að notum. Aðrar lífverur
nota hluta uppskerunnar en annað eyðist og fer í mómyndun og er sýnt hér
sem úrgangur. Af fœðu og fóðri er lítill hluti grœnmeti og rótarávextir (sýnt
sem grein til vinstri á myndinni). Fer grœnmetið mest til manneldis en einhver
hluti lendir sem fóður. Heildarfóðurmagn er ýmist innlent (meginstofninn á
myndinni) eða aðfengið (ör til hœgri). Síðan er sýnt hvernig aðeins lítill hluti
af orku fóðursins nýtist afbúfé til vefjamyndunar. Að lokum er gert ráðfyrir,
að 70 hundraðshlutar búfjárafurða séu notaðir til manneldis, þ. e. bœði sem
kjöt og mjólkurmatur. Fœst þá út, að árleg orka af landbúnaðarvöru til
manneldis er 13x10“’ kcal. Sé nú reiknað með því, að maðurinn þurfi 2 500
hitaeiningar á degi hverjum eða 912 500 kcal á ári, er hér um að rœða orku,
sem svarar til viðurværis fyrir 142 000 manns.
108 kcal og árlega séu alls um
lxlO10 kcal í garðávöxtum.
Nú má enn fylgja því eftir hvað
verður um hitaeiningar sem eru í
fóðri búfjárins. Sést þá, að aðeins
lítill hluti orkunnar, um 5%, fer í
raunverulegan vöxt eða nýmynd-
un vefja. Mikill hluti (35%) ork-
unnar úr fóðrinu fer í bruna, sem
kemur fram við vinnu og ýmis
efnahvörf líkamans. Um 60% ork-
unnar nýtir búféð ekki, og fer sú
orka með úrgangi, þvagi og taði.
(3. mynd).
Sýna má fram á, hve mikil orka
er bundin í öllum vefjum búfjárins
og hvernig sú orka nýtist fyrir
síðneytendur, þ. e. manninn.
Þannig má reikna út þá heildar-
orku sem fæst til manneldis við
það að íslenskur gróður og búfé
umbreytir sólarorku í fæðu.
HEIMILDIR
Markús Á. Einarsson Global radiation
in Iceland, Veðurstofan, Reykjavík 28
bls. 1969.
Stout, B.A Energy for world agricult-
ure, FAO, Rome 286 bls. 1979.
Sturla Friöriksson Líf og land, Varði,
Reykjavík 263 bls. 1973.
Líf í landi, Maður og umhverfi Líf og
land, Reykjavík bls. 195—203. 1979.
Sólarorka í íslenskum landbúnaöi. Orku-
notkun og orkusparnaður í landbún-
aði, Reykjavík bls. 65—70. 1983.
Molar
Norömenn selja Portúgölum kvígu-
kálfa.
Nýlega var flogið með tvö hundr-
uð norska kvígkálfa til Portúgals.
Er það liður í samkomulagi sem
þjóðirnar tvær hafa gert með sér.
Norsku kvígurnar verða þegar
tímar líða notaðar til kynbóta á
kúabúum portúgalskra fjalla-
bænda en þeir hyggjast fara að
framleiða mjólk til sölu.
Þegar hefur nokkuð af gripum
af norskum austanfjallsstofni ver-
ið flutt til Portúgals til héraðs eins
við spönsku lndamærin og í árslok
var enn sendur hópur af kvígum
þangað.
I mörgum þorpum í héraði
þessu hafa verið reist nýtísku
mjólkurhús með kælitönkum og
mjaltakerfum. Bændur á þessum
slóðum stækka nú kúabú sín, en
fram að þessu hefur búfjárrækt
þar verið smá í sniðum.
(Norinform)
92 — FREYR