Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 26
Sœnsk œr á beil. (Ljósm. Fjóla Helga-
dóllir).
anum er til mikill fjöldi landbún-
aðartækja.
Þegar allir voru ferðbúnir var
haldið til Röros sem er gamall
bær, uppbyggður vegna námu-
rekstrar þar í grenndinni. Þarna
snæddum við hádegisverð á litlu
veitingahúsi, sem hreinlega lokaði
í tvær klst. til að rýma fyrir hópn-
um. Næst var ekið í átt til Börsa og
voru allir í ferðaskapi enda veður
hið ákjósanlegasta.
Síðla dags komum við í náttstað
sem var hjá sóknarprestinum í
Bprsa, Skírni Garðarssyni, íslend-
ingi í húð og hár, og er hann
hálfbróðir ferðasöguritara. Reis
fljótlega tjaldborg í garði
prestsetursins en nokkrir komu
sér fyrir inni í húsinu sem er
fjögurra hæða timburhús frá árun-
um 1760 eða 223 ára gamalt.
Skírnir bauð svo öllum til stofu
og sagði þar frá staðnum í stuttu
máli en að því búnu var hópnum
borinn kvöldverður og var það
heimilislegasta máltíð ferðarinnar.
Að málsverði loknum gengu allir
til kirkju þar sem séra Skírnir las
pistil dagsins og flutti hugvekju og
allir sungu saman tvo sálma. Var
þetta mjög hátíðleg stund sem
líður viðstöddum seint úr minni.
Þegar vaknað var að morgni
mánudags voru þeim hjónum,
Skírni og Torill, þakkaðar höfð-
inglegar móttökur úti á hlaði og
afhent bókin Bændaskólinn á
Hvanneyri 90 ára og Hvanneyrar-
fáninn, og prestfrúin fékk háls-
men, gyllt hvannalauf, en það er
einmitt merki skólans. Síðan var
skólasöngurinn sunginn fullum
hálsi og gestgjafarnir að lokum
kvaddir með handabandi og hlý-
jum kveðjum.
Ekið var sem leið lá í gegnum
Þrándheim og um hádegið kom í
bflinn til okkar Olav Aspli, fulltrúi
bændasamtakanna í Norður-
Þrændalögum, en þennan dag og
þann næsta vorum við í boði
þeirra. Fyrst var stansað á sveita-
bænum Háa gárd, en þar búa
tvenn hjón Lars og Jenny Lie og
Unni og Arne Lie. Þau hafa engar
skepnur heldur rækta korn, kart-
öflur og gulrætur í stórum stfl
ásamt smáræði af ýmsu öðru
grænmeti.
Húsbændur sýndu okkur í úti-
hús þar sem fullkomnar vélar
stóðu í hverju horni en húsfreyjur
skenktu gestum svaladrykki úti á
hlaði. Þarna sáum við líka 1. verð-
launa veiðitík sem gaut 9 hvolpum
í fyrravetur og voru 8 þeirra seldir
á rúmar 11 þúsund ísl. krónur
hver.
Að þessari heimsókn lokinni
var haldið til Stiklastaðar, þar sem
á hverju ári er sett á svið leikrit
um atburði sem þar gerðust árið
1030. Þá ætlaði Ólafur konungur
helgi að kristna norsku þjóðina en
fékk mótbyr sem endaði með bar-
daga. Féll Ólafur sjálfur en hans
menn fóru með sigur af hólmi.
Sveitabærinn Nestvold var næsti
viðkomustaður en þar ræður hús-
um Odd Nestvold bóndi, og dýra-
læknir í hlutastarfi. Þarna var líka
íslenskur dýralæknanemi, Alfreð
Schiöth að nafni, sem dvaldist
þarna í verklegu námi. A búinu
eru eingöngu svín, en einnig eru
ræktaðar kartöflur og korn sem
fóður handa þeim og þarf því lítið
aðkeypt fóður.
Ferðinni var svo haldið áfram til
Snása og komum við þangað að
kveldi dags. Ekið var heim að
sveitabænum Gran, allir drifnir
inn í bæ og fram borinn veislu-
matur. Gestgjafar hópsins voru
hjónin Inger og Fridtjof Mólmvik
og Hildur og Ingvar Strand sem
öll hafa komið í bændaferð til
íslands. Sungið var bæði á ís-
lensku og norsku fram undir
miðnætti og líktust þessi veislu-
höld einna helst þorrablóti hér
heima.
Hópnum var síðan dreift til gist-
ingar á sveitabæi í nágrenninu og
fóru 2—4 á hvern. Mæltist þessi
tilhögun yfirleitt vel fyrir því að
þarna gafst mönnum tækifæri til
að spreyta sig á norskunni upp á
eigin spýtur.
Daginn eftir var haldið áfram
að aka um héraðið og fyrst skoð-
aður sveitabærinn By gárd en þar
búa hjónin Marit og Asbjörn Hel-
land stórbúi á norskan mæli-
kvarða. Bústofninn er eingöngu
nautgripir og rúmar fjósið 140
gripi, þar af eru básar fyrir 50
mjólkurkýr.
Útihúsabyggingar eru gamlar
en nýlega endurbættar þannig að
innréttingar og vinnuaðstaða er
eftir nýjustu kröfum. Mjaltir fara
fram í nýjum mjaltabás sem er
með 6 kútum og tekur um eina
klst. að mjólka allar kýrnar. Með-
alnyt er 7.200 1 á ári. Kýrnar eru
Hjónin á By gárd, Marit og Asbjörn
Melland, ásamt syni sínum. (Ljósm.
S.V.J.).
106 — FREYR