Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 33

Freyr - 01.02.1984, Qupperneq 33
efni frá þróuninni árin 1981 og 1982 fylgir hér mynd af tekjuskipt- ingu eftir meöalnythæð á kúabú- um búreikninganna 1982. Sam- kvæmt henni, sem að vísu er gróf viðmiðun, kemur fram að bú með um og yfir 4000 lítra meðalársnyt á kú (fl. 7) gefa rúmlega fimrn sinn- um hærri tekjur, en bú með meðalársnyt undir 2500 lítrum (fl. 1). Nemur þessi tekjumunur um 225 þús. kr. á meðalkúabú í bú- reikningum 1982 og á verðlagi þess árs eða með sama áframhaldi um kr. 340 þús. 1983, miðað við 50% verðbólgu á rnilli þessara ára. Það munar um minna. Nákvæm krónutala skiptir hér ekki höfuðmáli, heldur hinn gífur- legi tekumunur, sem að megin- hluta má beinlínis rekja til mis- munandi nýtingar á afurðagetu gripa á viðkomandi búum. Gefur auga leið að tekjumunur einstakra bænda er mun meiri en þessi, þar eð hér er einungis um meðaltöl flokka að ræða úr tiltölu- lega litlu úrtaki bænda. Þótt undirritaður hafi býsnast yfir vinnu Ketils við að sanna að verðhlatföll helstu rekstrarvara bænda, áburðar og kjarnfóðurs, annars vegar og afurða hins vegar, hafi mikil áhrif á breytilega af- komu bænda á milli ára, er mikill misskilningur hjá Katli að ég telji það lítil sannindi, síður en svo. Hins vegar eru sveiflur milli ára sem orsakast af þessum verðhlut- föllum hvergi nærri eins miklar og þær, sem eiga rætur sínar að rekja til meðalafurða gripa á hverjum tíma eins og hér hefur verið bent á. A þessunr tveim ástæðum fyrir breytileika í tekjum er einnig sá veigamikli eðlismunur að um verðhlutföllin geta einstakir bændur litlu ráðið en aðfurðir á grip eru að mestu eða öllu leyti undir þeim sjálfum komnar. Þannig fer ekki hjá því að það atriði, sem mest áhrif hefur á afkomu einstakra bænda er það hversu lagnir þeir eru að nýta afurðagetu hverrar skepnu á búi sínu. Þetta ætti mönnum að vera a. m. k. jafnljóst og áhrif verð- hlutfalla aðfanga og afurða á af- komu bænda. Því virðist hins veg- ar ekki að heilsa, jafnvel ekki hjá þeim, sem gleggsta yfirsýn ættu að hafa. Hvað veldur? Þeir sem vinna að framleiðslu- stjórnun í landbúnaði geta ekki litið framhjá þessari staðreynd og farsæl lausn næst ekki án þess að verulegt tillit sé tekið til hennar. Þarna verður að koma til samstarf og samvinna leiðbeiningarþjón- ustunnar og Framleiðsluráðs eins og Ketill bendir réttilega á. Þótt ekki sé stefnt hærra en svo að t. d. afurðir kúa færist upp í um 4000 lítra meðalársnyt á næstu árum þýðir það fækkun um ca. 6000 kýr að óbreyttri neyslu. Ótrúlegt má teljast ef ekki er hægt með samstilltu átaki, að koma á slíkri fækkun yfir landið, án þess að til verulegrar röskunar komi. Má nefna breytta búskapar- hætti, sem fela í sér fækkun kúa og aukna heimaöflun, þannig að nettótekjur haldist og helst vel 50 ára afmælis minnst Nú eru liðin rúm 50 ár síðan einn merkasti atburður í refaræktinni átti sér stað, en þá sá fyrsti pla- tínurefurinn dagsins ljós. Það skeði þegar silfurrefalæða gaut 5 yrðlingum á Dýraeyju í Tromsfylki heima hjá bóndanum Martin Evertsen, 4 yrðlingar voru venjulegir silfurrefir en sá fimmti var mjög frábrugðinn. Trýnið var hvítt og einnig voru fætur hvítir ásamt búk. Síður voru einnig hvít- ar með svörtum hárum, skottið var dökkt og langt og hvítur hring- ur um hálsinn. Yrðlingurinn var skýrður Mons og hann keypti annar refabóndi sem hét Hans Kjær. Það gerðu sér allir grein fyrir að yrðlingurinn varð til fyrir stökkbreytingu, en hvort þessir eiginleikar mundu koma fram í afkvæmum Mons var það og jafnist á sama tíma sem mest. Nefnd 4000 lítra meðalársnyt, er þó langt frá því að vera full- nýting á afurðagetu kúnna, enda víða fyrir hendi. Furðu margir hræðast þetta, einkum vegna gam- alla kerlingabóka um að afurða- semi sé af hinu illa og leiði hina ágætustu menn út í þá ósvinnu að pína kusurnar, kreista mjólkina úr þeim með hinu voðalega kjarn- fóðri. Þeir smeyku geta því verið alveg rólegir — ekki síst þegar þess er gætt að ófá bú státa af mun hærri meðalnyt en þetta, jafnvel svo að sum hver eru að nálgast 6000 lítrana án þess að þjáningar- merki sjáist á nokkurri skepnu — þvert á móti — á betra heilsufar verður vart kosið. Hættum að hafa afurðagetuna bara upp á punt — það er sóun á heimafengnum gæðum — lúxus, sem bændur verða að greiða fyrir með margfalt lægri tekjum en hin- ir hafa, sem leyfa sér ekki þann munað. ekki vitað. Vorið 1934 fékk Hans Kjær svar við þeirri spurningu þegar fyrstu yrðlingarnir undan Mons fæddust, þeir höfðu eigin- leika föðurins. Næsta verkefni hjá Hans Kjær var að kynna platínu- skinnin og hann gerði það á eftir- minnilegan hátt, því hann gaf krónprinsessu Mörthu og ísprins- essunni Sonju Henie sitt skinnið hvorri. Urn haustið 1937 átti Mons 100 afkomendur sem voru nákvæm eftirmynd hans og eftirspurn orðin mikil eftir undaneldisdýrum og verðið mjög hátt. Það er óhætt að fullyrða að platínuævintýrið hefði ekki átt sér stað ef þessir bændur á Dýraeyju hefðu ekki haft trú á framtíðina og verið áhugasamir um að reyna eitthvað nýtt. U.þ.l. FREYR— 113

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.