Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 10

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 10
Mjólkurframleiðsla eykst á heimsbyggðinni Ársfundur Alþjóðasambands mjólkuriðnaðarins (IDF) var hald- inn í septembermánuði í Kaup- nrannahöfn. Rúmlega 500 fulltrúar frá 33 þátttökulöndum sátu fund- inn. Samtök afurðastöðva í mjólkur- iðnaði á íslandi gengu í IDF ekki alls fyrir löngu og sátu íslenskir fulltrúar fundinn í Kaupmanna- höfn í fyrsta sinn, þeir Oskar H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Þorsteinn Karlsson, matvælafræð- ingur og Sævar Guðmundsson, mjólkurbústjóri í Neskaupstað. Mörg mál voru lögð fram á fund- inum og ræddi í nefndum. Einnig voru fluttir fjölmargir fyrirlestrar um málefni mjólkuriðnaðarins. Aðalfundurinn er æðsta stjórn IDF og aðildarríki hafa þar jafnan at- kvæðisrétt, en sérstök nefnd fer nreð framkvæmdavaldið milli þessa. Þar kom fram á fundinum að mjólkurframleiðsa í heiminum hafi aukist og muni vaxa um 1-2% á árunum 1989-1990. Hún fer minnkandi í löndurn Efnahags- bandalagsins en eykst í Bandaríkj- unum og þróunarlöndum. Kúm fjölgar í heiminum, aðallega í þró- unarlöndunum. Næsti fundur IDF verður haldinn í Montreal í Kanada 1.-5. október n.k. Heimild: Mjólkurfréttir. Rafstýrð sauðfjárbeit. Svíar undribúa að stjórna beit sauðfjár með rafmagni. Rafstreng- ur er lagður á jörðu kringum beit- arhólf og á féð verður sett heyrnar- tæki, sem gefur frá sér hljóð þegar kindin nálgast kapalinn. Féð lærir þá fljótt að forðast hljóðgjafann. Norsk landbruk. BÆNDASKÓLINN HÓLUM í HJALTADAL Námskeið við Hólaskóla janúar - maf 1989 Hrossarœkt: Dagsetning: Járningar 13. jan. og 14. jan. Kynbótagildi og þjálfun hrossa 12-14. febr. og 5.-7. mars Byggingardómar hrossa 19.-21. mars Hœfileikar hrossa 2.-6. mars Fiskeldi og veiðar: Fiskeldi, grunnnám 29.jan.-l O.febr. Veiði og vatnanýting 5.-8. febr. Bleikjueldi 28.-30. mars Sjókvíaeldi 23.-25. apríl Silungsveiði 5.-8. mars Hafbeit 14.-16. mars Ýmis námskeið: Bœndabókhald 14.-16 febr. og 12.-14. mars Skattskýrslugerð 19.-21. febr. Virðisaukaskattur 2. febr. og 9. febr. Tölvunotkun 1 26.-28. febr. Tölvunotkun II 2.-4. apríl Heyverkun 26.-28. mars Félagsmál landbúnaðarins 28.-31. mars Málmsuða 4.-6. apríl Skógrœkt 16.-18. maí Námskeiðin munu verða auglýst nánar síðar. Skráning þátt- töku er á skrifstofu skólans í síma 95-35962. Framleiðnisjóður landbúnaðarins tekur þátt í kostnaði þátt- takenda. Skólastjóri.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.