Freyr - 01.01.1990, Síða 17
Hrossum hefur fjölgað
ört
Búfjártalningin sl. vor leiddi í ljós að hross í
landinu eru nú orðin álíka mörg og nautgripir eða
um 72 þúsund. Hefur þeim fjölgað mjög mikið hin
síðustu ár eða um eitt til tvö þúsund á ári og um
þrjú þúsund 1987. Árið 1971 voru 36 706 hross í
landinu og árið 1986 voru þau orðin rösklega 56
þúsund en sl. vor töldust þau vera eins og áður
sagði um 72 þúsund. Á sama tíma hefur sauðfé
fækkað um 24%.
Mikill munur
Pað er næstum ókleift að tala um sameiginlega
landbúnaðarstefnu í Evrópubandalaginu. Munur á
löndum er svo gríðarlega mikill. Meðal kúabú í
Grikklandi er 3 kýr en 100 í Englandi. Um 71% af
öllum bændabýlum í EB eru í Suður-Evrópu, þ.e.
Grikklandi, Italíu, Spáni og Portúgal. Þar er víða
að finna bú með framleiðni eins og tíðkaðist í
afskekktum sveitum á Norðurlöndum milli 1920 og
1930 segir í Bondebladet.
Námskeið í grisjun og
viðhaldi skóga
Námskeið í grisjun og viðhaldi skóga var haldið á
Fljótsdalshéraði í nóvember sl. Þátttakendum var
kennt að fara með þau tæki sem notuð eru til að
grisja skóg og einnigfengu þeir leiðsögn í að þekkja
hvað skal grisja og hvað ekki. Skógrækt ríkisins
hafði yfirumsjón með grisjuninni og tóku skógar-
bændur á Héraði þátt í henni. Héraðsskógar veittu
sex milljónir króna til þessa verkefnis. Fénu var
varið til að kaupa verkfæri, hlífðarfatnað og annars
kostnaðar við námskeiðið.
Mjólkurbúum fækkar í
Danmörku
Mjólkurbúum í Danmörku hefur fækkað um meir
en 200 síðustu 10 ár. Nú eru starfandi þar í landi 73
mjólkurfélög sem reka 135 mjólkurstöðvar. Fyrir
tíu árum voru 255 mjólkurfélög í Danmörku og 353
mjólkurstöðvar. 33 af þeim mjólkursamlögum sem
nú eru í rekstri eru samvinnufélög en 40 eru í
einkarekstri.
Búrlaus hænsnabú
Þær vistarverur, sem henta best á búrlausum
hænsnabúum fyrir varphænur eru klefar eða skálar
á mörgum hæðum með fóðrun og brynning-
amippla í miðju en hreiður út með veggjum. Af
samanlögðum gólffleti á a.m.k. fjórðungur að vera
autt svæði með undirburði. Frá þessu segir í sviss-
nesku tímariti um alifuglarækt. í Sviss verða
varpbúr bönnuð frá 1991. Búrlaus hænsnabú þurfa
meira eftirlit til þess að halda góðu hreinlæti og
forðast þannig tjón af völdum sníkla og sýkla segir
m.a. í blaðinu.
Votheysverkun vaxandi í
Vestur-Evrópu
Votheysverkun jókst um 60% á árunum 1975 til
1985 í Vestur-Evrópu eða úr u.þ.b. 47 milljón
tonnum af þurrefni í u.þ.b. 78milljón tonn. Þróun
votheysverkunar í rúlluböggum hefur án efa átt
sinn þátt í þessari þróun, en einnig hafa verið settir
kvótar á mjólkurframleiðslu og það hvetur bændur
til að nýta heimaaflað fóður betur en áður við
mjólkurframleiðslu. í sumar sem leið voru trúlega
verkuð um 300 milljón tonn af grasi í vothey í
Vestur-Evrópu.
Finnar reynast eistnesk-
um bændum haukur
í homi
Áhugi er mikill meðal sænskra og þó einkum
finnskra bænda á því að hjálpa bágstöddum starfs-
bræðrum sínum í baltnesku ríkjunum, helst þó í
Eistlandi. Milli þessara landa við Eystrasalt eru
söguleg og menningarleg tengsl. Blaðið Landsbyg-
dens Folk greinir frá því að safnað sé nú notuðum
en nothæfum búvélum af öllum tegundum í Finn-
landi handa eistneskum bændum. í sumum sveit-
um hafi bændur á hverjum og öðrum hverjum bæ
gefið vélar eða tæki í söfnunina. Og frá Eistlandi
berast fréttir um að þörfin sé mikil.
1, JANÚAR 1990
Freyr 9