Freyr - 01.01.1990, Page 18
Börn og hestar saman er
áhugamál mitt
Best af öllu er þó að það fer í vöxt að hestamennska sé fjölskylduáhugamál,
segir Kolbrún Kristjánsdóttir í Rauðuvíkvið Eyjafjörð, æskulýðsfulltrúi L.H.,
íviðtali við Frey.
Kolbrún Kristjánsdóttir. (Freysmynd J.J.D.).
Ég er fædd í Reykjavík, en ég
kynntist fyrst hestamennsku þar
sem ég var í sveit. Ég var mikið
sveitabarn og náttúrubarn og sótti í
sveitina strax sem krakki. Ég var
lengst af í sveit á Laxfossi í Borgar-
firði hjá ágætishjónum þar.
Það byrjaði þannig að móðir mín
var ráðskona í laxveiðihúsununt
við Norðurá sem rennur um land
Laxfoss og bóndinn var að keyra
möl í afleggjarana með hestakerru.
Ég fór að elta hann og klifra á bak
og kom mér svona innundir hjá
honum. Og það varð endirinn á að
ég fór að vera í sveit hjá honum á
sumrin. Þá var ég sjö ára.
Fékk hest í fermingargjöf
Hjónin á Laxfossi gáfu mér hest í
fermingargjöf. Ég gat komið þeim
hesti til Reykjavíkur og upp frá því
byrja ég að stunda hestamennsku á
fullu fyrir sunnan.
Um tvítugt flyt ég út á Seltjarn-
arnes og er svo heppin að beint á
móti mér voru rnenn með hesta.
Þar fór ég að komast á hestbak.
Varst þú ekki með reiðskóla fyrir
sunnan?
Ég vann í mörg ár við reiðskólann
hjá Fáki, bæði í Reykjavík og á
sumrin í Saltvík á Kjalarnesi.
Hefurðu átt góða hesta?
Já. Ég átti t.d. skjóttan hest, mjög
góðan, sem Freyr hét. Hann var
geysilega öflugur og mikill reið-
hestur. Eftir að ég kom hingað átti
ég mjög góðan hest, bleikan. Ég
seldi hann reyndar í fyrra og sé
mikið eftir honum. Sem betur fer
hef ég kynnst mjög góðum hestum
um ævina, bæði sem ég hef sjálf átt
og verið með fyrir aðra.
Það er skemmtilegt að umgang-
ast góða hesta. Og kannski
skemmtilegast af þessu öllu er að
það hefur aukist nú síðari árin að
hestamennska sé sameiginlegt
áhugamál fjölskyldu. Þá eru for-
eldrar og börn þeirra saman um
þetta tómstundastarf.
Hvenærfluttuð þið hingað norður?
Við fluttum árið 1980 í september.
Þetta var alltaf gamall draumur að
komast í sveit. Maður ætlaði sér
það alltaf miklu fyrr, en eins og
gengur dróst þetta og dróst þangað
til núna fyrir 9 árum.
10 Freyr
1, JANÚAR 1990