Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 19

Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 19
Ungir nemendur íreiðskóla Kolbrúnar íRauðuvík 22. júní 1987. Börnin eru ísumarbúðum U. M.S. E. íÁrskógsskóla. Kolbrún er baka til á miðri mynd. (Freysmynd). Við byrjuðum bara með 50 kind- ur og svo þessi fáu hross sem við áttum í Reykjavík, 6 reiðhesta. Hér var gamalt fj ós sem við breytt- um í hesthús. Þið hafið haft fleiri járn í eldinum? Já, við höfum unnið úti bæði, sér- staklega fyrstu árin. Ég stundaði dálítið tamningar hérna fyrst. En það er ekki mjög góð aðstaða til að stunda tamningar hér að því leyti til að það er svo lítið um reiðvegi. Maður er undir eins kominn upp á þjóðveg og það er ekki gott fyrir tryppin. Hesthúspláss er hér lítið. Við þyrftum að byggja hér upp, því húsin hér eru gömul og léleg. Fyrst og fremst þurfum við að byggja hesthús. Hafðir þú ekki reiðskola hérna? Jú, á sumrin. Þá þurfti ég ekkert að hafa hestana inni og er með girð- ingar hérna. Ég var með reiðskóla í ein 4-5 sumur. Það gekk ljómandi vel. Æskulýðsfulltrúi L.H. En nú er ég komin með embætti segir Kolbrún og hlær. Síðast liðin þrjú ár hef ég verið æskulýðsfull- trúi Landssambands hestamanna. Það starf var sett á laggirnar til þess að aðstoða hestamannafélögin í landinu að efla unglingastarfið. Við eigum mikið af unglingum sem stunda hestamennsku og við þurf- um að hlúa að þeim og halda um þau svo að þau haldi áfram með þetta áhugamál sitt. Það varð því úr að Landssamband hestamanna réði æskulýðsfulltrúa fyrir allt landið. Það hefur verið það mikið að gera í þessu starfi að ég get ekki haft reiðskóla með því. Ég hef hins vegar tekið námskeið með hjá hestamannafélögum sem hafa hóað í mig. Hvernig kannt þú við starfið? Mér líkar þetta mjög vel. því börn og hestar saman er áhugamál mitt og hefur verið lengi. Eg sé alltaf sjálfa mig sem barn þegar ég var að brasa í hestamennsku og enginn í minni fjölskyldu, enginn nákom- inn og raunar enginn sem ég þekkti hafði áhuga á hestum. Þess vegna er mér svo mikið í mun að krakkar sem hafa áhuga á hestum fái ein- hversstaðar aðstoð, ef enginn í fjölskyldunni hefur áhuga. Núna geta þau leitað til næsta hestamannafélags. Þarerstarfandi unglingadeild og þar geta þau fengið aðstoð og upplýsingar um t.d. verð, ef þau eru að hugsa um að kaupa sér hest, eða reiðtygi eða sitthvað annað. Að þessu erum við að vinna og einnig að kynnum barna og unglinga á milli félaga, að þau séu ekki ein á báti í sfnu félagi þar sem e.t.v. eru fáirá þeirra reki. Þannig eflist þetta og ég held að unglingar endist Iengur í hesta- mennskunni ef þau eiga marga fé- laga í þessu áhugamáli sínu. Hvað hafið þið marga hesta? Við eigum ekki mörg hross. Helst vildi ég eiga hundrað hesta stóð. Það er áhugamálið mitt, en maður kemur því ekki upp svona einn, tveir og þrír. Það tekur nokkurn tíma. Nú eru kröfurnar orðnar svo miklar að maður þarf að eiga góðar hryssur, vel ættuð hross, til þess að þetta gangi. Hvernig jörðer Rauðuvík? Hérermjög grösugt oggott. Túnið er um 26 hektarar. Hérna ofan við veginn var gamalt býli sem hét Hillur. Það heldur sínu nafni enn, því það er sér veðbókarvottorð fyrir Hillur þó engin hús séu þar lengur. Þarna uppi á Hillunum er mjög grösugt og mikið land því jörðin nær til fjalls. í sumar vorum við með stóðhest þar og leigðum út girðingar. Stóðhesturinn var Gassi l.JANÚAR 1990 Freyr 11

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.