Freyr - 01.01.1990, Síða 20
Spóla Snotrudóttir lá á sex hvolpum.
frá Vorsabæ sem er mjög vinsæll
núna. Hjá honum voru um 30
hryssur. Vegna landgæða er
hægt að vera með töluvert af
skepnum hér í Rauðuvík. Húsa-
kostur mætti vera betri eins og
áður var getið og það kostar sitt að
byggja upp um þessar mundir.
Við völdum líka í upphafi bú-
grein sem brást, þ.e. loðdýrarækt.
Hún gaf góð fyrirheit þegar við
byrjuðum. en allir vita hvernig
framhaldið hefur orðið.
Við reistum 1000 m2 loðdýra-
skála og öfluðum okkur bústofns.
Þarna ætlaðist ég til þess að a.rn.k.
annað okkar fengi vinnu til að vera
heima við. Eg sá þarna fyrir mér
góða atvinnumöguleika fyrir mig
og hugðist svo hafa hrossin með.
Ræktar íslenska
fjárhundinn.
Uppi á vegg í stofunni í Rauðu-
vík hanga verðlaunaslaufur og
verðlaunapeningar og fimm eign-
arbikarar standa á sjónvarpinu.
- Þetta hef ég allt fengið á tíkina
mína gömlu, hana Snotru. Það
voru á tímabili 4 stórir farandbik-
arar hérna á Sjónvarpinu.
Þess er þá að geta að þegar
fréttamaður kom inn í íbúðarhúsið
í Rauðuvík lágu þar á tandurhrein-
um beði í forstofunni tvær íslensk-
ar tíkur á hvolpum. Þær eru mæðg-
ur, Spóla og Snotra, fallegar
skepnur, og hvolpana átti sú yngri.
Amman er bara að hjálpa til við ala
upp og þrífa hvolpana sagði
Kolbrún.
- Við fórum með Spólu á sýningu
í vor og hún fékk ofurlítinn bikar
og slaufu og var valin besti hvolp-
urinn. Ég vil rækta íslenska hund-
inn, því mér þykir gaman að hon-
um. Gamla tíkin hefur staðið sig
það vel að mér finnst ástæða til að
rækta út af henni. Hún er 9 ára
núna, en ég byrjaði ekki að fara
með hana á sýningu fyrr en hún var
7 ára.
Til gamans má ég til með að
segja þér að ég fór með Snotru á
sýningu í Reykjavík 22. október.
Hún var valin besta íslenska tíkin,
besti íslenski hundurinn á sýning-
unni, besti öldungurinn og næst
Verðlaunagripir og viðurkenninga-
borðar fyrir hestaíþróttir og hunda-
rœktun prýða stofuna í Rauðuvík.
Snotra erfalleg tík af íslenska fjárhundakyninu og endist velþó hún séfarin að
reskjast. Hún er margverðlaunuð og var sæmd fjölda heiðurstitla á sýningu
síðast í haust.
12 Freyr
l.JANÚAR 1990