Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1990, Page 23

Freyr - 01.01.1990, Page 23
Björn S. Stefánsson. Þegar hugmyndir ráða IV Um alllangt skeið hafa verið að mótast hugmyndir um það hvernig bezt megi nýta auðlindir jarðar til langframa. Óvenjuleg hlýindi á árunum fyrir 1940 í kornrœktarbelti Norður-Ameríku leiddu til þess að gróðurlendi þornaði og blés upp. Vistræn sjónarmið. Má segja að þar hafi verið fyrstu váboðar þess sem allir mega nú sjá, að mennirnir stefna framtíðarheill mannkynsins í voða með háttalagi sínu. Hér á landi kynnti Hákon Bjarnason skógræktarstjóri þessar viðvaranir með því að þýða bókina „Heimur á heljarþröm“ sem kom út á frummálinu árið 1948. A sjö- unda áratugnum beindist athyglin að þeirri útrýmingarhættu sem ein- stakar tegundir virtust komnar í vegna háttalags mannanna. Smám saman mótuðust sjónarmið sem kölluðu á nýtt orð, vistfræði, um það hvernig gæta yrði og gæta mætti hófs og jafnvægis í nýtingu náttúrunnar. Hin vistrænu sjónarmið leiða til þeirrar niðurstöðu í stuttu máli, að einhæfni sé óheppileg, en að fjöl- breytni sé farsælust þegar til lengd- ar lætur. Þessi sjónarmið urðu fyr- irferðarmikil á áttunda áratugn- um. Þar með er ekki sagt að þau hafi orðið áhrifamikil. Hér á landi er frekar talað um umhverfisvernd en vistrænanýtingu. Afþvítagieru áhyggjur manna af landeyðingu. Land hefur spillzt við búsetu, en svo mikið land er enn ræktanlegt að vel má segja að varla sé farið að nýta landið til fóðuröflunar. Um- hugsunarefni er að þeir sem mest láta að sér kveða í umhverfisvernd- armálum skuli ekki benda á slíka nýtingu sem framlag landsins til vistrænnar nýtingar jarðarinnar allrar. Vistræn nýting Islands fæst með blönduðum búskap, með nautgripi, sauðfé og hross. Því Björn S. Stefánsson. stefnir það ekki til vistrænnar nýt- ingar jarðanna að gera búskap ein- hæfan. Önnur hlið vistrænnar hugsunar er að styrkja almennt fjölbreytni mannfélagsins. Ef það er hugsað einstrengingslega kann það að leiða menn til að snúast gegn hvers konar sérhæfingu. Það er vitaskuld misjafnt hvers virði fjölbreytnin er eftir því hvernig starfsemin mótar mannlífið. Ef litið er á búskapar- hætti hér á landi er fátt sem auðgar eins líf barna (og þar með fullorð- inna) og tækifæri til að umgangast sauðfé. Útrýming sauðfjár í og við þéttbýli og fækkun sveitaheimila með sauðfé er því dæmi um um- sköpun landbúnaðar sem ekki er í samræmi við vistrænt viðhorf til mannlífsins. Niðurlag. Það flækir stjórn landbúnaðarmála að landbúnaðinum má ætla margs konar hlutverk. Hann á að treysta öryggi þjóðarinnar, hann á að kosta lítið, gera þjóðlífið fjöl- breyttara og auðga líf barna og hann gæti verið framlag til vistræns búskapar heimsins alls. Þaðerekki einfalt mál að skipa svo til að þessu verði sinnt samtímis. Oft hneigjast menn til að einfalda fyrir sér við- fangsefnið, ætla landbúnaðinum aðeins eitt hlutverk og virða önnur að vettugi. Til dæmis verður þess lítið vart að kynbræður mínir af þeirri kynslóð, sem mótaðist þegar vistræn viðhorf urðu áberandi, taki mikið tillit til vistrænnar hugsunar með afstöðu sinni í landbúnaðar- málum. Einnig er ljóst að framlag landbúnaðarins til öryggis þjóðar- innar næst ekki með frjálsum við- skiptum milli landa. í því sam- bandi er það umhugsunarefni að ýmsir sem borið hafa öryggi þjóð- arinnar mjög fyrir brjósti hirða ekki um það hvert grundvallarör- yggi innlend fæðuöflun kunni að vera þjóðinni. Ársskýrsla Búreikningastofu landbúnaðarins 1988. Frh. afbls. 36 ar á öllum þrem bútegundunum, en 1977-1979, 1981 og 1984-1988 eru sauðfjárbúin í neðsta sæti. Aðalástæður fyrir þessum breyt- ingum eru sveiflur í afurðamagni eftir árskú og kind milli ára. Röng hlutföll milli nautgripa- og sauð- fjárafurða í verðlagsgrundvelli hafa einnig haft nokkur áhrif. I.JANÚAR 1990 Freyr 15

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.