Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 26
Atli Vigfússon
frá Laxmýri
Mcð framtíðina að leiðarljósi
Sænsku bændasamtökin skyggnast inn í framtíðina
Dagana 21 og 22 september sl. héldu Sœnsku bœndasamtökin LRF upp á 60 ára afmœli
sitt. Afmœlisins var minnst með ráðstefnu um landbúnað framtíðarinnar. Pangað voru
boðnir um 70 forystumenn í sœnskum landbúnaði ásamt mökum, og formenn og
framkvœmdarstjórar bœndasamtaka í Noregi, Finnlandi og á íslandi. Fulltrúar Dana
höfðu ekki tök á að sœkja fundinn. Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands
bænda og Hákon Sigurgrímsson framkvœmdarstjóriþessfóru tilþessafundar. Að beiðni
þeirra hefur Atli Vigfússonfrá Laxamýri, sem nú er við nám á Sánga Sáby skólanum, þar
sem fundurinn var haldinn, tekið saman grein um það sem þar kom fram. Enda þótt
margt sé ólíkt í sœnskum og íslenskum landbúnaði er ástœða fyrir okkur að gefa gaum
þeim straumum sem þarna komu fram.
Atli Vigfússon
Árið 1989 hefur verið sænskum
bændum gott og gjöfult. Jafn
sólríkur og hlýr veöurkafli hefur
ekki komið frá því mælingar hófust
í Svíþjóð og þrátt fyrir þurra tíð
hefur verið metuppskera á ávöxt-
um og aldrei hefur fengist jafn
mikil hveitiuppskera af hektara og
nú.
Þetta gefur vissulega ástæðu til
bjartsýni en sjaldan hefur sænskur
landbúnaður staðið frammi fyrir
jafn mörgum ósvöruðum spurning-
um og á þessu hausti. Fyrir liggja
ýmsar óumflýjanlegar breytingar,
með aukinni samkeppni og tækni
og ýmsum þjóðfélagsbreytingum.
Offramleiðsla á korni er vanda-
mál og nú verður að taka 500 þús-
und ha úr ræktun. frysta kornverð
næstu þrjú árin og reyna að fá
bændur til þess að minnka fram-
leiðsluna með því að borga þeim
fyrir að nýta ekki akrana.
Þjóðfélagið þrýstir á að dregið
verði úr styrkjum til landbúnaðar
og þeir helst felldir niður og að
atvinnugreinin verði sjálfbjarga.
Bœndur eiga að vera forystuafl í umhverfisvernd á landsbyggðinni.
18 Freyr
l.JANÚAR 1990