Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 27

Freyr - 01.01.1990, Síða 27
Framtíðarsýn I Bóndinn getur framleitt mikið en vantar svigrúm i fyrsta dæminu er gengið út frá skipulagsþjóðfé- laginu Svíþjóð þar sem velmegun er smám saman að aukast. Bændum fækkar en hver og einn getur framleitt meira með aukinni tækni. Það eru höft á landbúnaðinum og mjög óverulegur útflutningur á landbúnaðarvörum. Þjóðfélagið krefst mikillar orku og allur sparnaður á því sviði mistekst og innflutn- ingur er á orku frá rússneskrum kjarnorkuverum. Skattar hækka enn og um 15% neysluskattur er á matvörum. Vinnutíminn styttist einnig sem gerir t.d. bændum sem hætta að búa kleift að sækja lengra til vinnu. Þjóðfélagsstraumar eru fjölbreyttir og neyslu- mynstrið er nokkurs konar „heilsuæði". Menntun er í hávegum höfð og fólk í flestum atvinnustéttum er stöðugt að endurmennta sig, einnig fólk sem er utan atvinnulífsins, svo sem lífeyrisþegar. Af nær 9 milljónum íbúa Svíþjóðar eru um tvær milljónir á ellilífeyri og hefur meðalævi þjóðarinnar lengst, einnig er mikill þrýstingur frá öðrum þjóðum að flytja inn í landið, og er reynt að fakmarka innflutning fólks. Fæðingum hefureinnig fjölgað. Tölvutæknin hefur tekið mikið stökk fram á við og er bóndinn nú í sambandi við íölvunet þar sem hann tengist bæði bændasamtökunum, ráðgjafa- þjónustunni, öðrum bændum o.fl. Samskipti manna fengjast einnig mikið svokölluðum höfuð- sföðvum tölva þar sem hægt er að afla hinna ólíkustu upplýsingar heim á borð. Veldi tölvunnar hefur þó ekki dregið úr pappírs- flóðinu og hefur það aukist mikið. Þrátt fyrir mikla pappírsnotkun verður offramleiðsla á honum og einnig timbri því að samkeppni hefur orðið við Sovétríkin á markaðnum, og af þeirri ástæðu stækka skógarog bændum, sem stunda skógrækt, fækkar einnig. Tilraunir eru í gangi með fleiri búfjártegundir svo sem með antílópur og hirti. Ekki telst það vera í stórum stíl þar sem það er innan við 5% af dýrahaldi í landinu. Mjólkurkúm hefur fækkað um 25% frá 1985. Kjúklingabændum aftur á móti hefur tekist að auka neyslu á kjöti sínu, undir kjörorðinu „Ham- ingusama hænan“, árið 1995. Yfirbyggingin í þjóðfélaginu er mikil, öll þjónusta verður dýr og háir vextir eru í landinu. Japanska jenið hefur orðið mun dýrara sem veldur óróa á peningamarkaðnum. Þar sem Svíþjóð er ekki með í opnum Evrópumarkaði telst landið töluvert ein- angrað. Umræðan um Efnahagsbanda- lagið er mikil og spurning hvort sænskur landbúnaður stenst þær kröfur sem gerðar verða til hans um hagkvæmni. Nýlega héldu Sænsku bænda- samtökin LRF (Lantbrukarnas Riksförbund) upp á 60 ára afmæli sitt á Sánga-Sáby skólasetrinu sem samtökin eiga, en einmitt þar komu saman tuttugu manns árið 1929 til undirbúningsfundar að stofnun heildarsamtaka sænskra bænda. í tilefni af afmælinu var efnt til umræðufundar um framtíðar- möguleika bænda, samvinnu þeirra í nýju ljósi og stöðu LRF í framtíðinni. Umræður urðu miklar og opin- skáar og sagði Bo Dockered, for- maður LRF, sem er harðsnúinn leiðtogi, að nú væri kominn tími til að bændur litu framávið og hættu að horfa í bakspegilinn. Framtíð landsbyggðar Til grundvallar umræðunni lagði LRF fram lesefni í þremur köflum. Próunin er sú að bóndinn er mikid einn á vinnustað sínum. Konan vinnur í næsta þorpi eða kaupstað og börnin eru t skóla. 1, JANÚAR 1990 Freyr 19

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.