Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 30

Freyr - 01.01.1990, Blaðsíða 30
Ný tækni — Rafeindastýrð fóðrun Alfa-Laval og Lydersens Maskin- fabrik hafa í sameiningu hannað rafeindastýringu á fóðurvagn sem gengur eftir hengibraut. Stýringin getur geymt upplýsingar um allt að 500 gripi og hún er, að því er A!fa- Laval telur, auðvelt að stilla og þægileg í meðförum. Tvennt annað er nýstárlegt við stýringuna. Það má stilla hana á að auka smám saman eða minnka gróffóðurgjöf handa hverjum ein- stökum grip. Það geta verið kýr sem gjöf er aukin við eftir burð og kýr sem dregið er úr gjöf við til að gelda þær. Einnig má stilla tækið þannig, segja framleiðendur, að geldar kýr fái gjöf einu sinni á dag, á meðan mjólkandi kúm sé gefið tvisvar, þrisvar eða fjórum sinnum á sólar- hring. Rafeindastýrði fóðurvagninn „Combi 111“ frá Alfa-laval og Lyder- sens Maskinfabrik í Danmörku. Stjórntœkið er á gafli vagnsins. an og gera bændum í starfi kleift að stunda símenntun og gerast þannig þátttakendur í heimi tölvunnar og öðrum þeim samskipta- og upplýs- ingamöguleikum sem eru og verða á boðstólnum. Þarna væri nám- skeiðahald mikilvægur liður, einnig kæmi fjarnám til greina. Þá þarf að styrkja menntun þeirra sem ætla út í búskap, og efla allar rannsóknir í þágu landbúnað- arins þannig að auðveldara verði að markaðssetja vörur þær sem framleiddar eru. Þannig opnar þekkingin nýjar dyr. Alla ráðgjöf þarf að auka, bæði til neytenda og framleiðenda, einkum til þess að eignast ánægð- ari kaupendur landbúnaðarvara, svo og til að stækka markaðinn. Bændur þurfa að stefna að hag- kvæmni í rekstri til þess að vera samkeppnisfærir en um leið að bæta framleiðslu sína þannig að 22 Freyr um gæðavöru sé að ræða. Annað mun ekki seljast í framtíðinni og þannig verða vörumerki þeirra sterk. Nýjar greinar þarf einnig að styrkja og stofna deildir innan bændasamtakanna til þess að sinna því starfi og skal fólk vera opið fyrir öllu nýju sem hugsanlega gæti verið landbúnaðinum til styrktar. Þannig stæðu bændur vel að vígi að ganga á hönd þjóðfélagsþróun eins og lýst er í framtíðarsýn 3. Bændur eiga að efla samtök sín á þann hátt að auka samstarf sitt við bændur í öðrum löndum, þó eink- um að efla samvinnu við hin Norð- urlöndin, og reyna að markaðs- setja það hreina umhverfi sem löndin í raun búa við, miðað við margar aðrar þjóðir. Bændur þurfa að vera í forystu í umhverfisvernd því að það eru þeir sem sitja lands- byggðina. Þeir eru í aðstöðu til þess að hafa áhrif á þau svæði þar sem þeir búa og þurfa að gæta þess að þeirra eigin búskapur misbjóði á engan hátt umhverfinu. Umræður voru líka miklar um skógrækt enda er skógurinn lífgjafi mikils fjölda Svía og margir segja að hann sé það sem þeir lifa af. í samræmi við það þarf að hlúa að skógunum og forðast eyðingu þeirra sem víða er orðin. Þá skulu bændur standa vörð um félagslega stöðu sína í þjóðfélag- inu, vera sterk stétt og stolt og efla þá menningu sem fylgt hefur bændafólki frá ómunatíð, þó svo að gengið sé framtíðinni á hönd. (Höfundur er í 8 mánaða námsdvöl á skóla Sœnsku bœndasamtakanna, LRF, á Sánga Sáby) 1. JANÚAR 1990

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.