Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 31

Freyr - 01.01.1990, Síða 31
Ólafur E. Stefánsson nautgriparæktarráðunautur Búnaðarfélagi Islands Eðlileg hlutdeild nautakjöts í kjötframleiðslunni Fyrri hluti fluttur í búnaðarþætti í ríkisútvarpinu 23/10 1989 í þessum þœtti verður rœtt um sérkenni íslenzks landbúnaðar með tilliti til landshátta, þá verkaskiptingu, sem orðið hefur íframleiðslu kjöts og mjólkur afsauðfé og nautgripum á þessari öld og loks, hve ólíkt viðhorf ráðamanna hefur verið í áratugi til framleiðslu á dilkakjöti annars vegar og nautakjöti hins vegar. Forsendur landbúnaðarfram- leiðslu í hverju landi eru í aðalat- riðum hinar sömu og ráðandi eru um aðrar framleiðslugreinar, þ.e. annars vegar að landið búi yfir auðlindum og sé því vel fallið til framleiðslunnar, og hins vegar að markaður sé fyrir hana. I velferð- arríkjum eru þó oftast gerðar sér- stakar ráðstafanir til að vernda landbúnað með ýmsu móti. Ástæðan fyrir því er tvíþætt. Þegar þjóðir hafa orðið nóg til að bíta og brenna, fara þeir, sem rúm fjárráð hafa, að veita sér önnur þægindi, og fjármagnið leitar frá landbún- aðinum til annarrar framleiðslu. En matur er mannsins megin, og framleiðslu hans verður að halda uppi. Því styrkja iðnríki búvöru- framleiðslu með ýmsu móti, hvert í sínu landi og sameiginlega á stærri markaðssvæðum. Að baki þeirrar stefnu eru jafnframt öryggismál á þrengingartímum. Aðallega hafa menn hingað til haft styrjaldir í huga í því sambandi. nú bætist við mengunarhætta. íslenzkur landbúnaður byggist á búfjárrækt Landshættir valda því, að íslenzk- ur landbúnaður byggist á t, J ANÚAR 1990 ________________ _____________________________________Freyr 23 búfjárrækt, þar sem grasrækt til sumarbeitar og vetrarfóðrunar er undirstaða búvöruframleiðslu. Framleiðsla fiskmjöls í landinu er mikilvægur þáttur í fóðurblöndum handa búfé. Því er það í raun að- eins kolvetnafóður, sem flytja þarf inn. Reynsla undanfarinna ára hef- ur leitt í ljós, að í stærstu búgrein- inni, mjólkurframleiðslunni, hefur verið hægt að minnka kjarnfóður- gjöf verulega þrátt fyrir stóraukna meðalnyt. Nýjar og bættar hey- verkunaraðferðir gera það nú kleift að framleiða nautakjöt með tiltölulega lítilli kjarnfóðurgjöf. Jórturdýr eru betur fallin en annað búfé til að nýta gras sem beit og hey til mikillar framleiðslu, enda hafa nautgripir og sauðfé ver- ið uppistaðan í búfjárframleiðslu hér á landi frá upphafi. Þessar tvær búgreinar verða áfram veigamest- ar í framleiðslu landbúnaðarmat- væla fyrir þjóðina. í þessum hug- leiðingum um framleiðslu naut- gripa- og sauðfjárafurða hér á landi er miðað við innanlands- neyzlu, þótt einhver útflutningur kunni að eiga sér stað, einkum ef íslenzk matvæli fengju á sig gott orð fyrir hollustu. Meira er upp úr því leggjandi að stuðla að því, að fleiri ferðamenn komi til landsins og neyti framleiðslunnar hér, en til þess þarf verðlag á henni að lækka og fjölbreytni að aukast. Fram- leiðsluverðmæti hrossa vega lítið í kjötframleiðslu. Þau eru talin alltof mörg í landinu, og mikla aðgæzlu þarf til að þau spilli ekki viðkvæmu landi, bæði á láglendi og annars staðar. Svína- og fuglakjöt er framleitt á erlendu fóðri að lang- mestu leyti. Þótt sjálfsagt sé að hafa þá framleiðslu til að skapa meiri fjölbreytni í matvælaiðnaði og auka vöruval, þá virðist enn skorta á, að gæði séu sambærileg við hliðstæðar vörur í Evrópulönd- um og vestanhafs.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.