Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 32

Freyr - 01.01.1990, Síða 32
aðar, hvað þá, þegar báðar koma saman, eru um margt líkar í bú- skaparlegu tilliti, þótt verkaskipt- ing á framleiðslu hafi verið mikii mestan hluta þessarar aldar. Báðar byggjast á nýtingu lands. Þar er þó sá munur á, að nautgripir eru hafðir á láglendi eingöngu. Mjólkurkýr ganga á túnum og geldneyti sömuleiðis, þótt þau séu einnig höfð á góðum úthaga. Sauð- fé er hins vegar víða beitt á tún á vorin og að haustlagi, en yfir sum- arið að nokkru á óræktað láglendi, en mestmegnis á afrétti. Fjárfesting í byggingum og véla- kosti er mikil í báðum greinum, en hefur sennilega aukizt hlutfallslega meir í mjólkurframleiðslu síðustu áratugina vegna vel útbúinna mjólkurhúsa, kælitanka fyrir mjólk og fullkomnari mjaltavéla, sem nauðsynlegt var að koma upp. Sparnaður í byggingum er sá á sauðfjárbúum, að engar sérbygg- ingar þarf yfir lömbin eða dilkana, og í nautakjötsframleiðslu er sparnaður í því að nota sömu kýrnar, mjólkurkýrnar, til að ganga með holdakálfa til kjötfram- leiðslu og til endurnýjunar mjólk- urkúastofnsins, eins og nú er gert. Við það sparast að hafa sérstaka hjörð holdakúa, sem þyrftu húsaskjól og fóður. Eftir að þéttbýli tók að vaxa ört á þessari öld og fráfærur lögðust af, varð greinilegri framleiðsluskipt- ing milli þessara búgreina. Mjólk- urafurðir urðu aðalframleiðsla á kúabúum, enda lengi vel skortur á mjólkurvörum sums staðar í kaup- stöðum. Kjötframleiðsla varð enn mikilvægari á sauðfjárbúum, bæði til innanlandssölu og útflutnings. Kjöt af nautgripum (mjólkurkúm, ungkálfum, nautum og geldneyt- um) var að verðmæti lítill hluti borið saman við verðmæti mjólk- urvara. Þetta fór ekki að breytast að marki fyrr en löngu síðar, þegar farið var að fella gallaðar kýr í ríkari mæli en áður. Byggingarlag kúnna hafði batnað, og farið var að slátra þeim yngri og í betri holdum. Þessara breytinga hefur gætt í vax- Starfsmenn Einangrunarstöðvarinnar í Hrísey við úrbeiningu á góðum skrokk. Allt kjöt er úrbeinað og bein grafin. (Ljósm. Ó.E.S.) Það er því ekki vafamál í huga þess, sem hér talar, að nautgripir og sauðfé verða áfram þær búfjár- tegundir, sem mestu máli skipta í búvöruframleiðslu landsmanna til neyzlu innanlands og við eðlilega nýtingu lands í flestum byggðar- lögum. Hér verður þó ekki lagt mat á þróun fiskeldis, en þar ráða önnur lögmál en þau, hvort jarðir séu vel fallnar til kjöt- og mjólkur- framleiðslu. Við stjórnun kjötframleiðslu af hálfu ríkis og annarra aðilja, sem með þau mál fara, þarf að hyggja að þeim forsendum, sem hér hefur verið bent á. í raun hefði fyrir löngu þurft að hefjast handa um að taka mið af eðlilegri þróun kjöt- framleiðslu landsmanna við ákvarðanatöku um ráðstafanir í þeim efnum og með áætlunargerð fram í tímann. Framleiðsla af nautgripum og sauðfé byggist á nýtingu lands Þessar búfjártegundir, nautgripir og sauðfé, sem hvor um sig skapar margfalt verðmæti á við fram- leiðslu í öðrum greinum landbún- 24 Freyr 1. JANÚAR 1990

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.