Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 34

Freyr - 01.01.1990, Síða 34
JónasJónsson, búnaðarmálastjóri Lax og laxfiskarsem heilsugjafi Prófessor Harald Skjervold hefur ásamt nokkrum brautryðjendum í lœknastétt, hjarta- skurðlœknum, nœringarfrœðingum, lífefnafræðingum og líffrœðingum, vakið athygli á laxi og laxfiskum sem sérstöku heilsufœði með tilliti til hjarta- og æðasjúkdóma. Það þykir nú fullvíst að hátt hlut- fall af svokölluðum omega-3 fitu- sýrum í fæði fólks sé sérstök vörn gegn lijarta- og æðasjúkdómum. Þessar fitusýrur myndast aðeins í plöntum, einkum í plöntusvifi og koma þaðan um næringarkeðjuna til fiska. Vegna lágs bræðslumarks þess- ara lífsnauðsynlegu fitusýra er þær fyrst og fremst að finna í feitum fiski sem lifir á köldum hafsvæðum eða í köldu vatni. Landdýr, (dýr með heitu blóði), og fiskar sem lifa í heitum höfum brenna þessum sýrum að mestu þar sem þær eru aðgengilegar sem orkugjafi. Vitað er að lax, lúða, feit síld, makríll og brislingur hafa hátt hlut- fall af omega-3 fitusýrum. Lítið liggur fyrir um silung en ekkert bendir til annars en að t.d. sjávar- og vatnableikjur séu í sama flokki fiska. Eftir að vakin var athygli á þessu á alþjóðlegum fundi sem prófessor Harald Skjervold beitti sér fyrir nú í sumar og síðan á blaðamanna- fundi sem hann hélt á Alþjóðlegu fiskeldissýningunni í Þrándheimi nokkru síðar hafa Norðmenn, með samtök fiskeldismanna í broddi fylkingar, ákveðið að hrinda af stað rannsóknum á þessu, í sam- ræmi við tillögur Skjervolds. Fyrst beinast þær að því hve mikið finnst af omega-3 fitusýrum í norskum laxastofnum, með það fyrir augum að hefja kynbætur á laxinum til að fá fram betri stofna að þessu leyti. Þessar rannsóknir eru nú þegar hafnar. Fóðurtilraunir í sama augnamiði munu og verða gerðar. í viðræðum við prófessor Harald Skjervold er var í heimsókn hér á landi 14.-17. september sl. kom fram að hann taldi mjög áhugavert að hefja sem fyrst samhæfðar rann- sóknir á íslenskum og norskum bleikjustofnum. í fyrsta lagi til að kanna hve mikið væri af omega-3 fitusýrum í bleikju. í öðru lagi hvort mismikið væri af omega-3 á milli stofna, sem koma úr mismun- andi umhverfi. í þriðja lagi benti hann á að þar sem eldi á bleikju, sem nú þykir Dr. Harald Skjervold, áðurprófessor í erfðafræði og kynbót- um búfjár við Landbúnaðarháskólánn á Ási í Noregi, er einn af frumkvöðlum fiskeldis þar í landi. Hann beitti sér fyrir því að komið var áfótfyrstu rannsókna- og kynbótastöð fyrir laxfiska í Noregi, stöðinni að Sunndalsöra, sem tók tilstarfa árið 1971, og síðan hefur orðið víðþekkt. Síðan hefur hann stöðugt beitt sér fyrir áframhaldandi rannsóknum og þróun nýrra hugmynda á þessu sviði. Það var fyrir frumkvœði Búnaðarfélags Islands að Skjervold var boðið að koma hingað til lands í kynnisferð í september sl. og til að halda fyrirlestra um framtíð fiskeldis og nýja möguleika í greininni. Auk Búnaðarfélagsins stóðu Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landssamband fiskeldis- og hafbeitarstöðva að boðinu. Prófessor Harald Skjervold hélt þrjá fyrirlestra síðdegis 14. september fyrir þétt setnum sal áhuga- og fagfólks. I fyrsta lagi fjallaði hann almennt um fiskeldi og erfðafrœði á eldisfiski, í öðru lagi um hugsanlega áhrif eldisfisks á villta fiskstofna, þ.e. hættu á svokallaðri erfðamengun og þau lögmál sem þar liggja að baki og í þriðja lagi um þá möguleika sem nýjustu uppgötvanir á sviði læknisfræði hvað varðar orsakir hjarta- og æðasjúkdóma sem þykja sýna að lax og aðrir feitir fiskar af norðlœgum stöðum (eða úr köldu vatni) sé sérstakt heilsufæði íþessu tilliti. Þessifyrirlestur vakti hvað mesta athygli og fylgir hér samantekt byggð á því sem fram kom í þeim fyrirlestri og á öðrum upplýsingum frá prófessor Harald Skjer- vold. J.J. 26 Freyr l.JANÚAR 1990

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.