Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 35

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 35
mjög áhugavert af ýmsum ástæð- um bæði í Noregi og hér á landi, er tiltölulega skammt á veg komið með tilliti til að velja hæfustu stofna, væri rík ástæða til að safna saman sem flestum stofnum til reynslu og samanburðar á sem breiðustum grundvelli. Slíkt stofnasafn gæti síðar orðið efni til alhliða úrvals og kynbóta. Að mati prófessors Haralds Skjervolds er líklegt að rannsóknir á laxfiskum með tilliti til omega-3 fitusýru og síðan kynning á þessum fiskum sem sérstakri hollustufæðu sé sterkasta trompið fyrir fiskeldi á norðurslóðum eins og nú standa sakir. Hann telur að líkur séu til að takast megi í samvinnu við lækna og næringarfræðinga að kynna fisk með þessum eiginleikum svo fyrir fólki, sem lætur sig heilsusamlegt fæði varða, að markaðir muni margfaldast og hefur t.d. látið sér detta í hug framleiðslu upp á eina milljón lesta af laxi í Noregi í til- tölulega náinni framtíð. Að hans mati mun laxeldi í Nor- egi ekki verða stundað til frambúð- ar í flotkvíum á innfjörðum, heldur í strandstöðvum svipuðum og byggðar hafa verið á íslandi. Þessu valda einkum umhverfissjónarmið (mengum innfjarða) annars vegar og sjúkdómavandamál innfjarða- eldis hins vegar. Þá hefur hann bent á að með þessu móti og e.t.v. Spegilmynd af Búrfelli færð í rétt horf. Mynd af Búrfelli í Grímsnesi sem birtist á bls. 877 í 21. tbl. Freys prentaðist sem spegilmynd og er hún því birt hér öðru sinni. Blaðið biður hlutaðeigendur velvirðingar á þessum mistökum. einkum vegna þess að omega-3 fitusýra er bundin við kaldsjávar- fiska geti laxeldi norður með ströndum Noregs verið eitt sterkasta tækið til að treysta hinar norðlægu strandbyggðir þar. Hvort sem þessar hugmyndir Haralds Skjervolds reynast allar raunhæfar eða ekki þá ætti það að vera ljóst hve mikilsvert það er fyrir íslendinga að fylgjast vel með á þessu sviði. Þetta getur haft mikla þýðingu fyrir sjávarútveg, fiskeldi og byggðaþróun á íslandi. Óska eftir fjórhjóli Allar gerðir koma til greina. Má vera bilað. Staðgreiðsla. Upplýsingar í síma 98-22201. Jóhannes. 1, JANLIAR 1990 Freyr 27

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.