Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1990, Page 39

Freyr - 01.01.1990, Page 39
Ár 1989 Nr. 598 SCHNEIDFIX-heyhxiífur Gerð: Schneidfix SFW 160. Framleiðandi: Teebken, V-Þýskalandi. Innflytjandi: Þór hf., Reykjavík. YFIRLIT. Schneidfix heyskerinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1988-1989. líeyskerinn hentar vel til heyskurðar bæði á votheyi og þurrheyri. Hann er knúinn með einfasa rafstraum með 1600 W mótor. Skurðhraðinn er um 2,6 m/mín við votheysskurð sé skurðdýptin 30 cm, en allt að 4 m / mín í lausu þurrheyi þar sem skurðdýptin getur orðið 49 cm. Rafmagnsnotkun er að jafnaði 5-7 A og benda mælingar til þess að afl mótors sé á mörkum þess að vera nægjanlegt í föstum stæðum. Vinnuaðstaða við notkun á tækinu er fremur góð og tiltölulega auðvelt að stjórna því. í föstum stæðum ber þó nokkuð á óþægilegum titringi í handfangi. í þéttu votheyi þarf að ýta tækinu niður með nokkrum þunga og sömuleið- is þarf þá töluvert átak til að lyfta því upp úr skurðfari. Heyskurðurinn verður yfirleitt hreinn og hægt er að skera alveg út að veggjum og öðrum hindrunum. Ekki virðist sérstök slysahætta bundin við notkun heysker- ans ef notkunarreglum er fylgt. Vinna við viðhald á tækinu er lítil. Sérstakar smergilskífur þarf til að hvetja skurðbúnaðinn. Óverulegar bilanir urðu á reynslutímanum og í heild virðist tækið traustbyggt. 1, JANÚAR 1990 Ár 1989 Nr. 599 NORDSTEN-áburðardreifari Gerð: Nordsten Turbo-Matic TC 800. Framleiðandi: Thrige Agro A/S, Danmörku. Innflytjandi: Vélar og þjónusta hf., Reykjavík. YFIRLIT. Áburðardreifarinn Nordsten Turbo-Matic var reynd- ur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnað- arins sumarið 1989 og gerðar mælingar á dreifieigin- leikum hans. Vegna lítillar notkunar á reynslutíman- um var leitað eftir reynslu nokkurra bænda sem notað hafa dreifara af sömu gerð. Áburðardreifarinn er þyrildreifari með eina dreifiskífu sem knúin er frá aflúttaki. Dreifarinn er tendur á þrítengi dráttarvélar. Hann rúmar um 500 kg af áburði og vegur sjálfur 175 kg. Þetta rýrir fram- þunga lítilla og meðalstórra dráttarvéla talsvert og getur verið nauðsynlegt að þyngja þær að framan. Dreifarinn er lágbyggður og með nokkuð víðum áburðargeymi. Hleðsla hans er því tiltölulega auð- veld. Dreifarinn reyndist dreifa mjög jafnt ef haft var 12 til 13 m bil milli ferða og vel viðunandi ef það var á bilinu 11 til 13,5 m. Grind í áburðargeymi hindrar að kekkir í áburðinum loki útrennslisopi. Dagleg hirðing dreifarans er auðveld, m.a. vegna þess hve létt er að velta áburðargeymi frá þegar dreifarinn er tengdur og þegar komast þarf að dreifibúnaði til þirfa. Dreifibún- aður er úr ryðfríu efni. Engar athugasemdir komu fram um bilanir og virðist dreifarinn vandaður að allri gerð. Freyr 31

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.