Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1990, Síða 41

Freyr - 01.01.1990, Síða 41
Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 19. desember sl. gerðist m.a. þetta: Stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Þórólfur Sveinsson var tilnefndur til að sitja í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Varamaður hans er Þórarinn Þorvaldsson. Samráðshópur um GATT- viðræður. Borist hafði bréf frá landbúnaðar- ráðuneytinu þar sem það fer fram á að Stéttarsamband bænda tilnefni mann til að hafa samráð við ráðu- neytið varðandi undirbúnings- vinnu að viðræðum við GATT- samtökin. Tilnefndur var Gunn- laugur A. Júlíusson. Hákon Sigurgrímsson skýrði frá fundi bændasamtaka EFTA-land- anna sem hann sótti í Stokkhólmi í byrjun desember sl. Þar var fjallað um það sem er að gerast innan GATT-viðræðnanna og varðar málefni landbúnaðarins. Tilefni fundarins var m.a. sú mikla tor- tryggni sem ríkir innan bændasam- takanna í Svíþjóð og Finnlandi í garð stjórnvalda og ótti um að landbúnaðurinn verði notaður sem skiptimynt á þessum viðræðum. Atvinnumál kvenna í dreifbýli. Lögð var fram skýrsla Mörtu Ó. Jensdóttur um atvinnumál kvenna í dreifbýli. Skýrslan var unnin á vegum ráðuneyta félagsmála, landbúnaðar og iðnaðar á sl. sumri. Framkvæmdastjóra var falið að knýja á um framgang þeirra til- lagna sem er að finna í skýrslunni. Nýr búvörusamningur. Formaður skýrði frá fundi sem Stéttarsambandið átti með land- búnaðarráðherra og starfsmönn- um ráðuneytisins um framhald vinnu við nýjan búvörusamning. Á fundinum var ákveðið að koma á fót tveimur vinnuhópum. Annar á að móta tillögur varðandi svæðaskipulag í landbúnaði og hin um verðmyndun landbúnaðaraf- urða. Framkvæmdastjóri Stéttar- sambands verði í vinnuhóp um svæðaskipulag en formaður í vinnuhóp um verðmyndun. Ákveðið var að samninganefnd Stéttarsambandsins um búvöru- samning verði í baknefnd fyrir þessa nefndamenn. sér nægja keðjur á tveimur hjólum áað hafaþæráafturhjólunum. Það er bæði hættulegt og óhyggilegt að hafa keðjur eingöngu á framhjól- um. Sé ekið með þungan tengivagn er hætta á að dráttarvélin renni út á hlið að aftan og það býður slysum heim. Með því að hafa keðjur ein- göngu á framhjólum verður álag á framdrif og drifskaft óeðlilega mikið. (Heimild: Norsk landbruk 21/89) J.J.D. Myndbönd um búfræði Ræktunarfélag Norðurlands er að vinna að gerð fræðslumyndbanda fyrir bændur og aðra þá sem áhuga hafa á landbúnaði. Um er að ræða 40-50 mínútna myndbönd, tekin við íslenskar aðstæður, þar sem fjallað er um ýmsar greinar land- búnaðar. Lokið er töku fyrsta myndbandsins og fjallar það um grasrækt og er hugmyndin að það verði boðið til sölu í vor. Einnig er að mestu lokið myndatöku annars myndbands er fjallar um kartöflu- rækt, en önnur myndbönd eru á undirbúningsstigi. Myndbanda- og kvikmyndagerðin Samver hf. á Akureyri sér um myndatöku og aðra tæknivinnu. Fjárveiting til að koma þessu verkefni af stað fékkst frá Fram- leiðnisjóði landbúnaðarins, en Ræktunarfélag Norðurlands leit- aði til bændaskólanna, Búnaðarfé- lags íslands og Rannsóknastofnun- ar landbúnaðarins um faglega ráð- gjöf. Voru skipaðar tvær ritnefndir fulltrúa þessara stofnana til að marka stefnuna og gefa faglegar leiðbeiningar. Ritstjóri grasrækt- armyndbandsins er Bjarni E. Guð- leifsson en með honum í ritnefnd eru Óttar Geirsson, Reykjavík, Ríkharð Brynjólfsson, Hvanneyri, og Valgeir Bjarnason, Hólum. Myndbandinu um kartöflurækt stýrir Ólafur G. Vagnsson, Akur- eyri, en með honum eru Magnús Óskarsson, Hvanneyri, Magnús Sigsteinsson og Sigurgeir Ólafs- son, Reykjavík og Valgeir Bjarna- son, Hólum. Segja má að hugmyndin að þessu verkefni hafi vaknað vegna þess að hefðbundnar leiðbeiningar ráðunauta heima á bændabýlum og á bændafundum hafa dregist saman og sums staðar lagst af. Auk þess er ný tækni, myndbandstæk- in, komin til sögunnar sem ætti að auðvelda leiðbeinendum að koma fróðleik til skila á myndrænan hátt. 1. JANÚAR 1990 Freyr 33

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.