Freyr - 01.01.1990, Side 43
einn. Þessi ákvörðun byggist á því
að fjármögnun á starfi Mjólkur-
dagsnefndar hefur hin síðari ár
verið fólgin í því að til hennar hafa
runnið 0,67% af andvirði seldrar
mjólkur og mjólkurafurða, sem
nefndin hefur varið til starfs síns.
Hlutverk Mjólkurdagsnefndar
er að annast víðtækt kynningar-,
upplýsingar og fræðslustarf fyrir
mjólk og grunnvörur mjólkuriðn-
aðarins. Nefndin annast samræm-
ingu umbúða eftir því sem þurfa
þykir.
Mjólkurdagsnefnd skipa nú:
ÓskarH. Gunnarsson, form; Odd-
ur Helgason, Baldur Jónsson og
Páll Svavarsson. Frey er ókunnugt
um fulltrúa L.K.
Skráning á kartöfluverði.
Kynnt var eftirfarandi ályktun frá
Landssambandi kartöflubænda:
„Hausfundur fulltrúaráðs L.S.K
1989 beinir því til Stéttarsambands
bænda og Framleiðsluráðs land-
búnaðarins að sjá til þess að opin-
bert heildsöluverð verði skráð á
pökkuðum og ópökkuðum kartöfl-
um og ströngu verðlagseftirliti
verði fylgt varðandi söluálagn-
ingu.“
Reglur um unnar kjötvörur.
Kynnt var bréf frá Hollustuvernd
ríkisins varðandi gerð reglna um
unnar kjötvörur. Framleiðsluráð
tók undir nauðsyn þess að um-
ræddar reglur yrðu settar, m.a. að
skilgreint verði lágmarksinnihald
af kjöti í þessum vörum.
Hollustuvernd fór fram á styrk
til verksins og samþykkti Fram-
leiðsluráð að veita allt að kr. 500
þúsund í því skyni enda verði nið-
urstöður kynntar ráðinu.
Verðmiðlunargjöld til mjólkurbúa.
Kynnt var reglugerð um greiðslur
verðmiðlunargjaldatil mjólkurbúa
árið 1989 nr. 581/1989. Hún er nær
óbreytt frá eldri reglugerð um
sama efni.
Árstíðabundið verðmiðlunargjald
á mjólk.
Kynnt var reglugerð um árstíða-
bundið verðmiðlunargjald af verði
mjólkur til framleiðenda, nr. 604/
1989. í henni er gefin heimild til að
greiða álag á vetrarmjólk, sem
nemur 8,5%, jafnóðum og grund-
vallarverð er greitt, fyrir mánuðina
nóvember til febrúar.
Áksorun um endurgreiðslu
fóðurgjalda vegna
mjólkurframleiðslu.
Kynnt var eftirfarandi ályktun.
„Aðalfundur Félagsráðs Osta-
og smjörsölunnar sf., 6. desember
1989, skorar á landbúnaðarráð-
herra að koma því til leiðar að
endurgreiðsla fóðurgjalda vegna
mjólkurframleiðslu séu inntar af
hendi miðað við innlagða mjólk á
mánuðunum október til og með
aprfl.
Fundurinn beinir því til Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, Sam-
taka afurðastöðva í mjólkuriðnaði
og Landssambands kúabænda að
leggja þessu máli lið.“
Birgðir búsafurða.
Meðfylgjandi er tafla um fram-
leiðslu og sölu kjöts, mjólkur og
eggia.
Forystumenn frá bændasamtökum
Bandaríkjanna og Evrópu komu
saman til fundar þ. 12. desember
sl. í Arizona í Bandaríkjunum. Þar
skiptust þeir í upphafi á upplýsing-
um og skoðunum um efni sem ekki
snertu beinlínis GATT-samning-
inn. En fréttamenn sem fylgdust
með fundinum segja að andrúms-
Ioft þar hafi verið kuldalegt.
Birgðir kindakjöts af fram-
leiðslu 1988 í lok nóvember voru
811 tonn sem er 37 tonnum eða
4,4% minna en af ársgömlu kjöti á
sama tíma árið áður.
Birgðir kindakjöts af fram-
leiðslu 1989 voru 8.403 tonn sem er
887 tonnum eða 9,5% minna á
nýju kjöti á sama tíma árið áður.
Birgðir af nautgripakjöti í lok
nóvember sl. voru 247 tonn sem er
113 tonnum eða31,3% minna en á
sama tíma árið áður.
Birgðir svínakjöts í lok nóvem-
ber sl. voru 31 tonn sem er 26
tonnum eða 45,7% minna en á
sama tíma árið áður.
Birgðir hrossakjöts í lok nóvem-
ber sl. voru 407 tonn sem er 49
tonnum eða 13,6% meira en á
sama tíma árið áður.
Birgðir alifuglakjöts í lok nóv-
ember sl. voru 90 tonn sem er 4,5
tonnum eða 4,8% minna en á sama
tíma árið áður.
Birgðir eggja í lok nóvember sl.
voru 99 tonn sem er 70 tonnum eða
240% meira en á sama tíma árið
áður.
Báðir aðilar hafa markað sér
stefnu og hvorugur virðist hafa í
hyggju að breyta henni þó menn
a.m.k. reyni að tala saman.
Þessi fundur er af kunnugum
talinn hinn mikilvægasti sem hefur
verið haldinn milli bændasamtaka
Bandaríkjanna og Evrópubanda-
lagsins.
Fjárhúsristar og
svínastíuristar
GUNNLAUGUR J. BRIEM
Hverfisgötu 4,
Pósthólf 1142, 121 Reykjavík.
Sími 91-11504.
Fundurfulltrúa bandarískra og
evrópskra bændasamtaka í Arizona
l.JANÚAR 1990
Freyr 35