Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 44

Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 44
Ársskýrsla Búreikningastofu landbúnaðarins 1988. ÁRSSKÝRSLA RÚREIKNINGASTOFU LANDRÚNAÐARINS 1988 Út er komin Ársskýrsla Búreikn- ingastofu landbúnaðarins fyrir árið 1988. Ábyrgðarmaður hennar er Jóhann Ólafsson, forstöðumaður Búreikningastofunnar. í yfirliti skýrslunnar segir: Á árinu 1987 færði 161 bóndi búreikning í samvinnu við Bú- reikningastofu landbúnaðarins. Til úrvinnslu voru teknir 97 reikn- ingar þeirra bænda, sem stunda því nær eingöngu sauðfjárrækt og/eða mjólkurframleiðslu. Þessir reikn- ingar voru flokkaðir í þrjá flokka eftir bútegundum. Þessir þrír flokkar eru kúabú, sauðfjárbú og blönduð bú. Þeirri reglu var fylgt að telja þau bú kúabú, þar sem framleiðslutekjur nautgripa eru 70% eða meira af heildarfram- leiðslutekjum búsins, en sauðfjár- bú þau, sem eru með meira en 70% af framleiðslutekjum frá sauðfjár- rækt. Blönduð bú verða aldrei með meira en 70% af framleiðslutekj- um frá annað hvort sauðfjárrækt eða naupgriparækt. Eftir þessari aðferð reyndust kúabúin vera 55, blönduðu búin 20 og sauðfjárbúin 22. Kúabúin reyndust vera stærst, eða að meðaltali 796 ærgildi, þá blönduðu búin 566 ærgildi, o'g sauðfjárbúin minnst eða 367 ær- gildi. Meðalstærð allra búanna er 651 ærgildi. Flest kúabúanna eru á Suðurlandi, Vesturlandi og Norð- urlandi, sauðfjárbúin eru flest á Austurlandi og Norðurlandi. Niðurstöður rekstrarreiknings sýna að meðalfjölskyldutekjur af landbúnaði eru kr. 1.119.815. Framleiðslukostnaður er kr. 2.652.708 og framleiðslutekjur kr. 3.772.523. Fjölskyldutekjur eru hæstar á kúabúum, eða að meðal- tali kr. 1.161.794. Fjölskyldutekjur af öðru en landbúnaði eru að með- altali kr. 73.340. Alls eru fjöl- skyldutekjur því kr. 1.235.134. Uppgjör einstakra búgreina er gert eftir framlegðaraðferðinni. Meðalframlegð á vetrarfóðraða kind er kr. 5.107, þ.e. hver vetrar- fóðruð kind getur greitt að meðal- tali kr. 5.107 fyrir vinnu, vexti og fyrningar, (þ.e. fastan kostnað). Framleiðslutekjur á kind eru að meðaltali kr. 6.969 og breytilegur kostnaður kr. 1.862, eða um 27% framleiðslutekna. Selt dilkakjöt er að meðaltali 16,31 kg eða 1,14 lömb á vetrarfóðraða kind. Meðal- fallþungi er 14,24 kg. Fædd lömb reyndust 141 á hverjar 100 vetrar- fóðraðar kindur, en þeim fækkaði til hausts í 132, og þar af voru 114 seld til slátrunar. Reiknað dilka- kjöt eftir vetrarfóðraða kind er hins vegar 18,8 kg. Kjarnfóður- magn er að meðaltali 9,8 kg og 2,2 kg graskögglar. Á árinu 1988 er meðalnyt á árskú 3.633 ltr. Framlegð á árskú er að meðaltali kr. 81.493. Fram- leiðslutekjur eru kr. 143.607 en breytilegur kostnaður kr. 62.114. Fara því um 43% af framleiðslu- tekjum í að greiða fyrir breytilegan kostnað. Með þessari aðferð við uppgjör á búgreinum þ.e. að sleppa vöxt- um, vinnu og fyrningum, en draga breytilegan kostnað frá fram- leiðslutekjum og fá fram framlegð- ina fýrir hverja búgrein, er saman- burður á niðurstöðum við önnur bú auðveldur. Framlegð á kú var mjög breytileg frá einu búi til ann- ars á árinu 1988 eða frá kr. 39.000 í kr. 131.000 áárskú. Stærsti þátturí afkomu kúabúanna er afurðamagn á árskú. í töflu eru sýnd áhrif með- alnytar á framlegð á árskú án þess að tillit sé tekið til annarra þátta. Taflan sýnir að framlegðin hækkar með hækkandi meðalnyt. Framleiðslukostnaður á heyi reyndist vera kr. 9,16 á kg eða kr. 17,29 á F.E., þegar reiknaðir eru 5% vextir af eign og laun kr. 327 á klst. Meðaluppskera af hektara var 34,8 rúmmetrar eða 1,846 F.E. en var 2.121 F.E. árið 1987. Við skoðun á efnahagsreikningi kemur fram að skuldaaukning er að meðaltali kr. 519.131, og eru skuldir í árslok þá kr. 2. 433.242, en eignir aukast um kr. 2.401.247. Þannig verður eignaaukning kr. 1.882.116 umfram skuldaaukn- ingu, þegar eignir hafa verið af- skrifaðar um kr. 482.656. Á kúa- búunum er eignaaukning umfram skuldaaukningu kr. 2.062.692, á blönduðu búunum kr. 1.757.578 og á sauðfjárbúunum kr. 1.543.878. Á undanfömum árum hafa orð- ið nokkrar sveiflur í tekjum eftir bútegundum. Árin 1969-1973, 1976-1986 og 1988 skipa kúabúin efsta sæti. Sauðfjárbúin eru hins vegar í efsta sæti árin 1974 og 1975 og blönduðu búin árið 1987. Árið 1976 voru fjölskyldutekjur svipað- Frh. á bls. 15. 36 Freyr 1, JANÚAR 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.