Freyr - 01.01.1990, Qupperneq 46
Magnús Sigsteinsson
Svipmyndirfrá Smithficld-
landbúnaðarsýningunni
Smithfield-landbúnaðarsýningin í Earls-Court sýningarhöllinni í London er árlegur
viðburður í byrjun jólaföstu. Að /ressu sinni stóð sýningin yfir dagana 3.-7. desember.
Fyrsti sýningardagurinn er ein-
ungis ætlaður sýnendum, boðs-
gestum þeirra og útlendingum, en
nú þurftu útlendingar í fyrsta skipti
að kaupa miða á sýninguna.
Dagsmiði fyrir erlenda gesti kost-
aði f 6.- en almenningur greiddi
f 12,- í inngangseyri. Þennan
fyrsta dag er færra fólk á sýning-
unni og þess vegna upplagt fyrir
okkur útlendingana að nota hann
vel til skoðunar.
Á þessari sýningu er mikið um
stórar og afkastamiklar vélar, sem
henta breskum landbúnaði og
landbúnaðarverktökum. Allar
tegundir dráttarvéla sem eru á
breska markaðnum eru sýndar af
ýmsum stærðum. Greinilegt er að
rúllubinding er vinsæl í Bretlandi
því að mörg fyrirtæki eru nú komin
með alls konar vélbúnað á mark-
aðinn fyrir bæði votheys-, þurr-
heys- og hálmrúllur.
Að venju var gripasýningin stór
þáttur og hefur sérstaklega holda-
nautunum, sem sýnd eru, farið
fjölgandi á seinni árum. Einnig eru
sýnd svín og sauðfé af mörgum
kynjum. Mikill tími fer í búfjár-
dóma en það er gaman að fylgjast
með þeim og gaman að sjá hvernig
eigendur gripanna nostra við að
snyrta þá áður en þeir eru sýndir í
dómhringnum.
Mynd 1. Pessi rúllupökkunarvél frá William Cook
Engineers Ltd. er ný af nálinni. Á pökkunarborðinu
eru þrjár rúllur eða valsar og drif á þeim öllum. Vélin
er á breiðum öxli til að auka stöðugleikann og hefur
vökvaknúinn arm til að lyfta rúllunum upp á pökkun-
arborðið. Bagganum er sturtað af borðinu til hliðar.
Sama vél var sýnd án hjóla og lyftiarms.
Mynd2. Massey-Ferguson fyrirtœkið sýndi rúllubindi-
vélar aftveim stœrðum, gerð 822 og 828. Þetta eru vélar
með stillanlegu baggahólfi (binda rúllur með föstum
kjarna). Sú minni bindur bagga allt að 130 cm í
þvermál, sú stœrri allt að 180 cm. Umgerðin um
baggahólfið ergerð Úr2x616 cm breiðum gúmmíreim-
um sem snúast á völsum og móta rúllurnar. Notkun
reima umliverfis baggahólfið er nýjung sem ýmsir
framleiðendur rúllubindivéla (fastkjarnavéla) hafa
tekið upp.