Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.2000, Qupperneq 2

Freyr - 01.11.2000, Qupperneq 2
Það borgar sig að skipta við traustan banka! (Q Með Sérkjörum Heimilislínu geta traustir viöskiptavinir bankans nýtt sér ýmsa þjónustuþætti á sannkölluðum sérkjörum. • Hærri innlánsvextir á Gullreikningi. • Allt að 500.000 kr. yfirdráttarheimild á lægri vöxtum. • Allt að 750.000 kr. skuldabréfalán án ábyrgðarmanna. • Allt að 1.000.000 kr. sveigjanlegt Sérkjaralán, með einu símtali. • Húsnæðislán til allt að 25 ára. • Möguleiki á sérstökum vaxtaauka í reglubundnum sparnaði. • Greiðsluþjónusta með útgjaldadreifingu. • Útgjaldadreifing í Heimilisbankanum. • Gullkreditkort Visa. • Frír aðgangur að Heimilisbanka á Internetinu. • Fjármálanámskeið og handbók á sérkjörum. • Gulldebetkort og 150 fríar færslur o.fl. I Sérkjörum Heimilislínu eru þjónustuþættir sem bjóðast aðeins I Búnaðarbankanum; þess vegna borgar sig að skipta... Fáðu nánari upplýsingar og bækling í næstu afgreiðslu Búnaðarbankans eða á heimasíðu bankans: www.bi.is Góð korn- uppskera í ár Utlit er fyrir góða kornupp- skeru í ár í löndum ESB. Það ntun enn þrýsta niður heims- markaðsverði á korni niður undir það lágmarksverð sent ESB tryggir bændum á svæði sínu. Á Norðurlöndunum er útlit fyrir góða uppskeru en spurning er um gæði kornsins vegna mikilla rigninga á sumrinu. Það gildir einnig um Þýskaland, Bretland og Frakkland. Spáð er að kornverð lækki um u.þ.b. 6-7% frá síðasta ári. Santa verður ekki sagt um komuppskeru í löndum Austur-Evrópu og í ESB. í Rúmeníu, Úkraínu, Búlg- aríu og Póllandi er séð fram á lé- lega uppskeru. Það stafar bæði af mikilli úrkomu og lélegu ástandi í landbúnaði þessara landa. (Lcmdbyggdens Folk nr. 29-30/2000) Skert birta á kúm fyrir burð eykur mjólkurmagn Þekkt er að kýr mjólka meira eftir burð á veturna með því að lengja birtutímann með lýsingu. Nú hafa hins vegar bandarískar rannsóknir sýnt að unnt er að auka nyt kúnna á komandi mjaltaskeiði með því að stytta birtutímann á meðgöngutímanum. í tilrauninni nutu kýmar annars vegar átta tíma birtu á sólarhring og hins vegar 16 tíma birtu fram að burði. Kýrnar sem nutu átta tíma birtu á sólarhring mjólkuðu 3,2 kg meira á dag fyrstu 16 vikur mjaltaskeiðsins en hinar. (Norsk Landbruk nr. 18/2000). Vilja drekka eigin mjólk Mjólkurrisinn ArlaFoods, sem varð til þegar sænska fyrirtækið Arla og danska fyrirtækið MD Foods voru sameinuð á síðasta ári, hafa orðið að korna til móts við kröfur frá dönskum neytendum urn að þeir fái danska rnjólk í mjólkurfernum sínum. Á fernunu- m stendur: „Er sænsk mjólk í dönskum mjólkurfemum? NEJ“. Hinum megin við Eyrarsund krefjast neytendur á sama hátt að fá sænska mjólk. (Bondebladet ne 41/2000). 2 - FREYR 10/2000

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.