Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 4

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 4
Stiklur úr sögu íslensku kýrinnar í 1100 ár Erindi flutt á þingi NÖK, norræns félagsskapar nautgriparæktarmanna, á Akureyri 23. júlí 2000 Oft hefi ég verið spurður af erlendu fólki af hvaða stofni kýrnar mínar væru. Þá svara ég jafnan: „Þær eru norsk- ar.“ Þetta þykir lítil skilgreining því að landið er langt og mjótt og hefur verið einangrað fjarða og fjalla á milli. En þá svara ég aftur: „Þær eru gamalnorskar." Ekki er þá meira spurt. Fræðimönnum ber flestum sama um að íslenska kýrin hafi verið vestnorsk, úr Fjörðunum vestan- fjalls, þaðan sem flestir íslenskir landnámsnenn komu á tímabilinu 870-930. Erfiður hefur sá flutn- ingur verið á þröngum farkostum yfir mikið úthaf. Því hefur verið valið vel í þann gripahóp sem fór þessa 7 til 20 daga sjávarleið. Síð- an má ætla að stofninn hafi eitt- hvað úrkynjast vegna einangrunar þeirra staða er menn byggðu á íslandi. Talið er að á söguöld hafi nautgripir náð tölunni 135.000 en þar af hafi mjólkurkýr verið 80.000.11 Ég ætla hér ekki að fjalla um fjöl- margar frásagnir um nautgripi í ís- lendingasögum. Aðeins að benda á notin. Kýmar gáfu okkur auðvitað mjólkina, mörg geldneyti vom höfð til kjötframleiðslu og svo vom naut notuð til dráttar. Þau drógu plóga við jarðyrkju og voru spennt fyrir heysleða til að flytja heim hey að vetrarlagi, á snjó og ísum.2) Síðustu sleðaeykin voru einmitt hér norð- anlands við byggingu á steinkirkju að Þingeymm veturinn 1864-1865. Drógu þá nautin tilhöggvinn stein á sleðum heim á kirkjustaðinn, og þurfti að jáma þau fyrir sleðadrátt- inn.31 Smám saman kemur nautgripa- eftir Pál Lýðsson, bónda og sagnfræðing, Litlu-Sandvík eignin betur í ljós þegar rýnt er í fornbréf og samtíðarsögur frá 13. öld og síðar fjölmarga máldaga og vísitasíugerðir biskupa er þeir heimsóttu kirkjujarðir. Stórhöfð- ingjar þurftu nautakjöts með til að halda vígamenn sína vel. Einn höfðinginn lét vígamenn sína, rúmlega 100 manns, éta upp til agna fimm vetra naut á einu kveldi.41 Og stórhöfðingi sem lét skrifa upp bækur, eða jafnvel Magnús Stephensen, háyfirdómari. F. 1836, d. 1917. skrifaði þær sjálfur, þurfti að eiga kálfa, en kálfskinn dugði best í þær bækur sem skrifaðar voru hér fyrir pappírsöld. Veröeiningin kúgildi Af flestum heimildum um síð- miðaldir er auðsætt að nautakjöt er hið eðla kjöt íslendinga. Landið var grösugra fyrstu aldirnar eftir landnám og menn fengu meira út úr nautaeldinu en sauðfjárræk- tinni. Og veðursældin á þeim tíma hæfðu einnig geldneytinu, sem oft tókst að beita úti allt árið. Svo var enn í lok 16. aldar og smám saman varð aðal verðauramælir Islend- inga mældur í kýrverði. Eitt kú- gildi var það sem leyfði einum manni að komast af á bæ. Það jafngilti einu jarðarhundraði. Jörð sem var 10 jarðarhundruð og bar 10 kúgildi gat fætt 10 manns, fjöl- skylduna og vinnufólk hennar, og þetta þótti bærileg jörð.5) Ef við leggjum þessi hugtök í nútíma verðmæti þá er kýrin nú metin í skattmati á um 70 þúsund ísl. krónur, en selst manna á milli á 80- 90 þúsund krónur. Islenska kýrin heldur hefðarsæti sín ekki lengur en til loka 16. aldar. Þegar komið er kringum 1620-1630 er gengishrap hennar komið í ljós. Menn hafa lengi velt fyrir sér kúa- fækkun þessari. Bersýnilegt er að veðurfar versnaði og þótti þá ekki eins vogandi að setja naut á vetrar- beit eingöngu. Stærstu nautabúin, sem biskupsstólamir ráku hér og þar, þóttu ekki lengur arðbær af því vetrarbeit versnaði. Svo varð verð- fall á mörgum nautgripaafurðum er danska einokunarverslunin hófst 1602.6) 4 - FREYR 10/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.