Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2000, Page 9

Freyr - 01.11.2000, Page 9
Hvönn og rœktun hennar Hvannastóð eru víða um land og hvannagarðar þekktust áður fyrr. Hvönn var talin allra meina bót og mikil drýgindi fyrir heimilin. Þekking á hvannar- rækt hefur að mestu horfið úr al- mennaeigu á síðari árum. Ahuginn er þó aftur farinn að aukast með til- komu heilsubyltingar og betri vit- undar fólks gagnvart þeim efnum sem það setur ofan í sig og á. Heimkynni Heimkynni ætihvannar (Angelica archangelica) eru á norðlægum slóðum svo sem Islandi, Síberíu og Lapplandi en hún vex lfka villt í Ölpunum og Pýreneafjöllum. Hvönnin er eina nytjaplantan sem á uppruna sinn norðan heimskauts- baugs. Útlit Ætihvönn er falleg jurt sem verð- ur rúmlega 2 m á hæð. Hún tilheyrir sveipjurtum og getur verið tví- eða fjölær. Plöntumar deyja eftir að þær hafa sett fræ. Undantekningarlaust geta plönturnar myndað hliðarstilka frá neðsta hluta stöngulsins. Nýi stöngullinn getur síðan myndað rætur og öðlast sjálfstætt líf á með- an móturplantan visnar niður. Blómin standa mörg saman í sam- settum sveipum sem eru 10-20 cm í þvermál, gerðir úr mörgum smá- sveipum sem hver um sig er 1,5-2,5 cm í þvermál. Blómin eru smávaxin og hvít að lit. Blöðin eru margsam- sett, tví- til þrífjöðrótt. Smáblöðin gróftennt og hárlaus. Stöngullinn er mjög sterkur, gáraður með víðu miðholi. Plantan hefur þykka meg- inrót en auk þess nokkrar hliðarræt- ur. Þær eru dökkbrúnar að utan en gulhvítar að innan. Geithvönn er ekki ósvipuð æti- hvönn en hún þekkist á sveipnum sem er flatari að ofan. Blaðstilkar geithvannarinnar eru djúpt grópaðir, blöðin bládöggvaðri og fíntenntari. eftir Ásdísi Helgu Bjarnadóttur, kennara, Land- búnaðar- háskólanum á Hvanneyri Hvönnin getur vaxið í mörg ár áður en rætumar verða það öflugar að þær geti myndað blómstöngul sem myndar fræ og þar með nýjar plöntur. Hvönnin getur orðið tveggja til sjö ára allt eftir vaxtar- stað og næringarástandi hans. Kjörlendi ætihvannar eru grósku- miklir gilhvammar og lautir, vatns- bakkar og hólmar þar sem hún fær frið fyrir ágangi búfjár. Geithvönn sækir í svipuð svæði en gerir meiri kröfur til veðursældar. Nýting fyrr og nú Áður fyrr þótti plantan mikilvæg og því talið nauðsynlegt að hafa hvönn í garðinum. Hvannagarðar voru algengir og nefndir því nafni víða um Norðurlönd. Þá nýttu menn ekki einungis stilkana heldur einnig hvannarrótina og bragðgóðu fræin í daglegt fæði og í drykki. Einnig var hún notuð sem lækn- ingajurt fyrir fólk og fé. Ræktun ætihvannar er ennþá talsverð í Frakklandi, Ungverjalandi, Hol- landi, Belgíu og Þýskalandi. I þeirri ræktun er rótin mikilvægust þar sem úr henni er pressuð olía sem notuð er sem bragðefni í ýmsa áfenga drykki. Hún er til dæmis í pernod, anisette, vermouth, Char- treuse-líkjör og ásamt einiberjum í gini. Heimsframleiðsla af olíunni er um 1000 kg á ári. Ferskir sykraðir stilkar eru nýttir til baksturs og sælgætisgerðar, blöðin látin út í ávaxtadrykki, lögð í marmelaði og þau söxuð í græn- metissalat. Hér á landi var ætihvönn algeng matjurt fyrr á tímum og voru allir Hvannarakur á garðyrkjubýlinu Engi í Laugarási í Biskupstungum. (Ljósm. Þráinn Þon’aldsson). FREYR 10/2000 - 9

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.